Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Kartöflubrauð

Kartöflubrauð

Vinsælt og gott er að smyrja brauðsneið undir álegg með sýrðum rjóma, strá uppáhaldskryddinu yfir t.d. sítrónupipar, steinselju eða öðru jurtakryddi.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hrærið gerið út í blöndu af vatni og mjólk (37°C). Blandið sykri og 7 dl hveiti saman við (verði þykkur grautur) og hrærið vel. Látið lyfta sér í 50-60 mín. Flysjið kartöflur og rífið smátt á rifjárni. Sigtið vökvann frá kartöflunum. Blandið 2 dl af heitri mjólk saman við kartöflurnar og bætið þeim saman við deighræruna ásamt salti. Hrærið hveiti (u.þ.b. 6 dl) saman við þannig að deigið verði þykkt en blautt. Setjið í mót og látið lyfta sér í u.þ.b. 40-50 mín. Penslið með olíu og bakið við 200°C í 50-60 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

kartöflubrauð

5 tsk þurrger
2 dl mjólk
2 dl vatn (heitt)
15 g sykur
2 tsk salt
385 g hveiti
800 g kartöflur
2 dl mjólk
330 g hveiti

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð