Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Kanilbollur

Kanilbollur

Þessar bollur eru góðar bæði án smjörs og með smjöri. Má frysta.

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið mjólkina í 37°C og blandið gerinu saman við. Bræðið smjörið og látið það rjúka. Blandið eggi, sykri og salti saman við vökvann ásamt hveiti og smjöri. Hrærið vel þannig að deigið verði seigt eða í 1-2 mín. Setjið deigið með skeið í lítil bréfmót. Sléttið yfir með hendinni.

Fylling:
Hrærið kremið (má nota púðursykur í staðinn fyrir sykur og kardimommur í staðinn fyrir kanil) og sprautið því í miðja bollu með litlu bréfkramarhúsi. Látið bollurnar lyfta sér í 30-45 mín. Penslið með eggjablöndu og stráið perlusykri yfir. Bakið í miðjum ofni við 230°C í 7-10 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

kanilbollur

4 tsk þurrger
3 dl mjólk
100 g smjör
1 egg
25 g sykur
0,5 tsk salt
440 g hveiti
 

fylling

30 g smjör
25 g sykur
0,5 tsk kanill

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð