Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Jarðarberjarúlla

Jarðarberjarúlla

Góð rúlla með kakóbolla og þeyttum rjóma.

Matreiðsluleiðbeiningar

Aðskiljið egg og þeytið rauðurnar með flórsykrinum. Þeytið eggjahvíturnar til hálfs og blandið sykrinum saman við. Þeytið áfram þar til hvíturnar eru stífar og blandið þeim saman við eggjarauðurnar. Sigtið þurrefnin saman við eggin og blandið gætilega. Búið til bréfskúffu 35x25 sm og bakið kökuna við 200°C í miðjum ofni í 10-12 mín. Hvolfið kökunni á sykurstráðan pappír.


Fylling:
Léttþeytið rjómann. Skerið jarðarber í bita og blandið flórsykri saman við. Blandið jarðarberjum saman við rjómann. Jafnið rjómafyllingunni yfir kalda kökuna og rúllið henni upp frá lengri hliðinni. Látið samskeytin snúa niður.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

fylling

225 g jarðarber
25 g flórsykur
2,5 dl rjómi
 

jarðarberjarúlla

3 egg
50 g sykur
50 g flórsykur
60 g hveiti
40 g kartöflumjöl

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð