Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Heslihnetukaka með rjóma

Heslihnetukaka með rjóma

Frábær á kaffiborðið eða sem eftirréttur með þeyttum eða óþeyttum rjóma eða 36% sýrðum rjóma.

Matreiðsluleiðbeiningar

Botn:
Blandið þurrefnum saman, myljið smjör út í og vætið í með eggi og hnoðið. látið deigið bíða í kæli í 1-2 klst.

Fylling:
Ristið hneturnar í ofni á bökunarpappír í 5-10 mín. við 180-190°C, passið að þær brenni ekki, látið rjúka. Nuddið hneturnar með pappírnum þannig að mest af hýðinu losni af. Hitið smjör í potti og látið brúnast örlítið. Sláið saman egg, eggjarauðu og sykur með handþeytara (ekki rafmagns). Bætið sírópi, ediki, smjöri, salti og vanilju út í og hrærið varlega. Bætið hnetunum út í.

Fletjið deigið út í kringlótta köku u.þ.b. 24-26 sm í þvermál. Þrýstið í mótið og vel upp með hliðum.

Bakið ljósbrúnt við 180°C í u.þ.b. 10-12 mín. Hellið fyllingunni yfir og bakið í 15-20 mín. eða þar til fyllingin hefur stífnað. Látið kólna í 1-2 klst. áður en kakan er borin fram.

Berið fram



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

botn

150 g smjör
65 g sykur
1 egg
0,5 tsk vanilla
280 g hveiti
 

fylling

200 g heslihnetur
20 g smjör
2 egg
1 eggjarauða/ur
110 g sykur
2 msk vínedik (cider)
0,5 b dökkt síróp
1 tsk vanilja
1 skm örlítið salt

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð