Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Gróft hunangsbrauð

Gróft hunangsbrauð

Í brauðið má setja krydd ef vill. Gott til að frysta.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið gerinu saman við ylvolgan vökvann og látið bíða. Linið smjörið. Blandið súrmjólk, hunangi og salti saman við ylvolga mjólkina. Blandið rúgmjöli, hveitiklíð, smjöri og hluta af hveitinu saman við og hrærið vel í þykkan og seigan graut (má hræra í hrærivél). Stráið hveiti yfir deigið og látið lyfta sér í u.þ.b. 1-11/2 klst. Hnoðið deigið mjúkt, bætið mjöli í eftir þörfum en gerið deigið ekki of stíft. Mótið jafnar bollur (22-24 stk.) og raðið í kringlótt lausbotna mót (24-26 sm í þvermál). Látið lyfta sér í u.þ.b. 1 klst. Penslið brauðið með eggjablöndu og stráið sesamfræi eða öðru korni yfir. Bakið í neðstu rim í ofni við 200?C í 50-60 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

gróft hunangsbrauð

50 g pressuger
3 dl mjólk
1 dl súrmjólk
70 g smjör
2 msk hunang
150 g rúgmjöl
25 g hveitikíð
300 g hveiti
0,5 tsk salt

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð