Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Góðgæti á veisluborðið

Góðgæti á veisluborðið

Berið fram sem eftirrétt eða á kaffiborð með þeyttum rjóma.

Matreiðsluleiðbeiningar

Botnar:
Stífþeytið egg og sykur.  Malið hnetur fínt í kvörn og blandið saman við ásamt hveitinu.  Bakið í tveimur mótum, 24 sm, við 170-180°C í u.þ.b. 35 mín.

Krem:
Setjið í pott kalt kaffi, eggjarauðu, sykur og kartöflumjöl, hrærið vel. Bætið súkkulaðinu út í. Hitið við vægan hita og hrærið vel í á meðan eða þar til kremið hefur þykknað. Kælið og bætið þeyttum rjómanum saman við.

Kælið botnana og setjið kremið á milli.

Súkkulaðibráð:
Bræðið súkkulaði og smjör saman í vatnsbaði, hrærið kaffi út í (má nota 1½ dl vatn og 1½ tsk skyndikaffi í staðinn fyrir 1½ dl sterkt kaffi). Hellið súkkulaðibráðinni yfir kökuna og skreytið.



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

krem

1,5 dl sterkt kaffi
1 eggjarauða/ur
40 g sykur
10 g kartöflumjöl
50 g suðusúkkulaði
3 dl rjómi
 

súkkulaðibráð

100 g suðusúkkulaði
2 msk kaffi
25 g smjör
1 skm saxaðar hnetur til skrauts
 

botnar

4 egg
200 g hnetur
200 g sykur
20 g hveiti

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð