Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Góð langbrauð með sýrðum rjóma

Góð langbrauð með sýrðum rjóma

Góð langbrauð smurð með sýrðum rjóma og áleggi á veisluborðið eða með sjálfstæðum léttum réttum. Þau má frysta.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið saman mjólk og vatni þannig að það sé 37°C heitt. Blandið gerinu saman við. Bætið sykri, salti og olíu út í og síðan u.þ.b. 6 dl af hveiti og hrærið vel. Látið deigið lyfta sér í 50-60 mín. Bætið hveiti saman við og hnoðið þar til deigið sleppir hendi. Skiptið því í 3 hluta og fletjið hvern hluta út í ílanga köku (u.þ.b. 7 mm þykka). Rúllið kökunni upp örlítið á ská þannig að endinn verði ójafn. Setjið brauðin á plötu með samskeytin niður og látið lyfta sér í 20-30 mín. Penslið með vatni og bakið við 220°C í 12-15 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

langbrauð

1,5 dl mjólk
1,5 dl vatn (heitt)
4 tsk þurrger
15 g sykur
1 tsk gróft salt
2 msk matarolía
470 g hveiti

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð