Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Fléttubrauð með sólþurrkuðum tómötum

Fléttubrauð með sólþurrkuðum tómötum

Tilvalið með grænmetissalati með fetaosti eða t.d. pasta.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið saman mjólk og vatni þannig að það sé 37°C og setjið gerið saman við. Grófsaxið tómatana og bætið út í mjólkurblönduna ásamt olíu, söxuðu bergmyntu, sykri og salti. Blandið hveiti út í og hrærið vel. Skiljið u.þ.b. 100 g eftir af hveitinu. Látið lyfta sér í 40-50 mín. eða u.þ.b. helming. Hnoðið og bætið hveiti saman við eftir þörfum þar til deigið sleppir vel hendi.

Skiptið deiginu í 3 hluta og rúllið í jafna sívalninga, leggið hlið við hlið og fléttið frá miðju til beggja enda.

Setjið brauðið á plötu og látið lyfta sér í 15-20 mín. Penslið með volgu vatni og bakið við 200-210°C í 15-25 mín. á neðstu rim í ofni



Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

fléttubrauð með sólþurrkuðum tómötum

2 dl mjólk
1,5 dl vatn (heitt)
3 tsk þurrger
1 tsk gróft salt
10 g sykur
3 msk sólþurrkaðir tómatar
2 msk olía af sólþurrkuðum tómötum
2,5 tsk bergmynta (oregano)
450 g hveiti

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð