Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Flatbrauð

Flatbrauð

Flatbrauð er gott með smjöri og hægt að frysta.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið saman mjólk og heitu vatni, þannig að það verði 37°C heitt. Leysið gerið upp í vökvanum og bætið bræddu smjöri út í. Blandið heilhveiti, kryddi, sírópi og hluta af hveitinu saman við þannig að deigið verði þykkt. Látið lyfta sér u.þ.b. um helming. Bætið hveiti út í og hnoðið mjúkt og sprungulaust deig. Rúllið út lengju og skiptið niður í 14-16 hluta. Fletjið út hringlaga kökur u.þ.b. 1/2 sm þykkar og 12 sm í þvermál og raðið á plötu. Breiðið stykki yfir og látið lyfta sér í 30 mín. Fletjið kökurnar út aftur og bakið á pönnu t.d. pönnukökupönnu við meðalhita.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

flatbrauð

2 dl mjólk
2 dl vatn (heitt)
2 tsk þurrger
30 g smjör
400 g hveiti
100 g heilhveiti
1 tsk salt
60 g síróp
2 tsk kardimommur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð