Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Ekta rúgbrauð

Ekta rúgbrauð

Brauðin geymast vel og þau má frysta. Frábær á danska vísu með kartöflum og salti eða jarðarberjum.

Matreiðsluleiðbeiningar

Deig 1:
Sjóðið vatn og hellið yfir rúgmjölið í skál. Hrærið vel saman og látið bíða í 6-8 tíma eða yfir nótt.

Deig 2:
Blandið mjólk og heitu vatni saman þannig að verði u.þ.b. 37°C, myljið ger saman við og látið leysast upp (má nota 5 tsk þurrger í staðinn fyrir 50 g pressuger). Hellið yfir deig 1 og blandið vel saman ásamt salti, fennel, anis, sýrópi og 10 dl mjöli. Hrærið vel saman og látið lyfta sér í 4 klst. Hnoðið deigið með u.þ.b. 8 dl af hveiti (stíft deig) og látið lyfta sér í skál í 30 mín. Hnoðið deigið aftur. Mótið tvö brauð og setjið í 2ja lítra mót. Látið brauðin lyfta sér í 30 mín. Penslið brauðin með vatni og bakið á neðstu rim í ofni í u.þ.b. 60 mín. við 200°C. Penslið brauðin aftur með vatni að loknum bakstri.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

deig 1

250 g rúgmjöl
5 dl vatn
 

deig 2

2,5 dl mjólk
2,5 dl vatn (heitt)
50 g pressuger
3 tsk gróft salt
1 tsk fennel
1 tsk anis
145 g síróp
500 g rúgmjöl
440 g hveiti

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð