Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Brúnterta í veislubúningi

Brúnterta í veislubúningi

Skreytið með þeyttum rjóma og apríkósum. Tilvalin í afmælispartýið.

Matreiðsluleiðbeiningar

Stífþeytið egg og sykur. Blandið saman þurrefnum og sigtið saman við eggjahræruna. Búið til bréfmót eða klæðið ofnskúffu (30 x 40 sm) að innan með bökunarpappír. Bakið botninn við 210°C í miðjum ofni í 8-10 mín. Látið kökuna rjúka og hvolfið henni á sykurstráðan pappír. Kælið.

Fylling:
Þeytið egg og sykur í stífa froðu. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn, skerið apríkósurnar í bita og þeytið rjómann. Hellið vatninu af matarlíminu og bræðið það í vatnsbaði. Kælið matarlímið með 1 dl af apríkósusafa og hellið út í eggjahræruna. Hrærið vel í á meðan. Blandið apríkósum og sítrónusafa út í og að síðustu rjómanum. Látið fyllinguna hálfstífna áður en hún er sett á. Skiptið kökunni í tvo jafna hluta og vætið með ávaxtasafa. Leggið botnana saman með helmingnum af fyllingunni á milli og afganginn ofan á. Látið kökuna bíða í 6-8 tíma.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

deig

5 egg
170 g sykur
5 msk kartöflumjöl
15 g hveiti
2,5 msk kakó
1,5 tsk lyftiduft
 

fylling

5 egg
65 g sykur
5 dl rjómi
1 ds apríkósur (stór)
1 dl apríkósusósusafi
6 tsk sítrónusafi
8 bl matarlím

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð