Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Brauð
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Brauð > Brauðkrans af grískum ættum

Brauðkrans af grískum ættum

Brauðið er gott með grænmetissalati, góðri súpu eða sem sjálfstæður réttur með glasi af öli.

Matreiðsluleiðbeiningar

Leysið gerið upp í volgu vatni, 37°C og bætið olíu, salti og súrmjólk saman við. Hrærið heilhveitinu og 4-5 dl af hveitinu út í og hrærið vel. Látið deigið lyfta sér í u.þ.b. 60 mín. Hnoðið deigið og bætið hveiti saman við þar til það verður mjúkt og viðráðanlegt.

Fylling:
Harðsjóðið eggin. Fletjið deigið út í ílanga köku, 55x25 sm. Raðið eggjasneiðum, sundurskornum ólífum og saxaðri steinselju yfir. Rúllið kökunni upp og leggið hana í hring á plötu. Látið samskeytin snúa niður. Látið lyfta sér í 20-30 mín. Klippið hálfa leið inn í kransinn með jöfnu millibili. Penslið með vatni og stráið korni yfir. Bakið við 210°C í 20-30 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

deig

2 dl vatn
3 tsk þurrger
2 msk olía
2 tsk gróft salt
2 dl súrmjólk
110 g heilhveiti
385 g hveiti
 

fylling

7 egg
100 g ólífur
3 msk fersk steinselja

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð