Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Þrískipt hnetuterta

Þrískipt hnetuterta

Matreiðsluleiðbeiningar

Súkkulaðihúðaðar hnetur til skrauts. Hitið ofninn í 200°C. Grófsaxið hneturnar og brúnið þær örlítið í ofninum, hristið bökunarplötuna öðru hverju þannig að þær brenni ekki. Stífþeytið eggjahvítur og sykur. Sigtið saman hveiti, lyftiduft og kakó, blandið hnetunum saman við og blandið varlega saman við eggjahvíturnar. Setjið í þrjú smurð hveitistráð klemmuform, 24 sm., með bökunarpappír í botninum. Bakið í 20-25 mín. Látið kólna örlítið í forminu áður en hún er tekin úr því og látin kólna á bökunargrind. Hitið apríkósumaukið og þrýstið því í gegnum sigti. Setjið í skál og breiðið plastfilmu yfir og bætið víni í rétt áður en á að nota það. Smjörkrem: Malið hneturnar. Sigtið flórsykur og kakó saman. Hrærið smjörið þar til létt og ljóst. Hrærið sykurinn saman við. Bætið hnetunum út í. Blandið víninu (kirsch, gin eða viskí) saman við rétt áður en á að nota kremið. Súkkulaðirjómi: Bræðið súkkulaðið í rjómanum. Kælið. Þegar súkku- laðið fer að stífna, setjið það þá í hrærivélaskál og þeytið þar til hræran verður ljós og sprautanleg. Setjið helminginn af apríkósumaukinu á neðsta botninn, þar yfir helminginn af smjörkreminu, endurtakið á næsta botni. Setjið efsta botninn yfir, smyrjið 1/3 af súkkulaði- rjómanum yfir, 1/3 á hliðarnar og sprautið 1/3 eða því sem eftir er sem skrauti á kökuna. Skreytið með súkkulaðihnetum. Látið kökuna standa í nokkrar klst. áður en hún er borin fram. Kakan er best við stofuhita.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Þrískipt hnetuterta

0 g botnar:
60 g valhnetukjarnar
6 stk eggjahvítur stórar,
180 g sykur
120 g hveiti
1,11 tsk lyftiduft
3 msk kakó,
0 g apríkósukrem:
375 g apríkósumauk
1 msk kirchlíkjör
0 g smjörkrem:
250 g heslihnetur
250 g flórsykur
3 msk kakó,
250 g smjör
1 msk kirchlíkjör
0 g súkkulaðirjómi:
300 g suðusúkkulaði
2,5 dl rjómi dl

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð