Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Súkkulaðiterta með kókosmjöli

Súkkulaðiterta með kókosmjöli

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 175*C. Setjið rjóma, kakó og helminginn af sykrinum í pott og látið suðuna koma upp. Kælið örlítið. Hrærið saman smjöri og sykrinum sem eftir er, þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum í einu í senn og hrærið vel í á milli. Blandið saman hveiti, kókosmjöli og lyftidufti og hrærið saman við smjörið til skiptis við rjómann. Setjið deigið í smurt brauðmylsnustráð klemmuform. Bakið í u.þ.b. 50 mín. Eða bakið í tveimur klemmuformum í u.þ.b. 25-30 mín. Látið kökuna kólna og kjúfið botninn í tvennt eða þrennt. Leggið botnanna saman með stífþeyttum rjóma bragðbættann með vanilludropum. Setjið rjóma ofan á efsta botninn og stráið rifnu súkkulaði yfir.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Súkkulaðiterta með kókosmjöli

250 ml rjómi ml
5 msk kakó,
150 g sykur
100 g smjör
4 stk egg
40 g kókosmjöl
2,22 tsk lyftiduft
200 g hveiti
2 dl rjómi þeyttur dl
0,5 tsk vanilludropar
100 g súkkulaði rifið

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð