Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Sælgætiskrans

Sælgætiskrans

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið mjólk og smjör þar til smjörið er bráðið. Hrærið gerinu út í volgan vökvann. Sláið egginu saman við ásamt sykri. Hrærið helminginn af hveitinu saman við. Stráið örlitlu af hveiti yfir deigið. Breiðið klút yfir skálina og látið hefast á hlýjum stað í 1-1 1/2 klst. Bætið hveiti saman við deigið og hnoðið þar til slétt og glansandi. (Gætið þess að setja ekki of mikið hveiti saman við, best er deigið þannig að það rétt losni frá borðinu.) Fletjið út í 50x24 cm ferhyrning. Stráið sykri yfir, dreifið þá súkkulaði og döðlum yfir. Rúllið deiginu upp frá langhliðinni. Kljúfið nú rúlluna með beittum hníf, eftir endilöngu. Setjið lengjurnar hlið við hlið með skurðflötinn upp. Vefjið lengjunum saman með skurðflötinn upp, og leggið í hring á bökunar- plötu klædda bökunarpappír, og þrýstið endunum vel saman. Leggið klút yfir vafninginn og látið hefast á hlýjum stað í 1 klst. Penslið kransinn með sundurslegnu eggi, og stráið sykri og möndlu- sónum yfir. Bakið við 175°C í u.þ.b. 25-30 mín. Kælið. Bestur er kransinn sama dag og hann er bakaður, jafnvel volgur á meðan súkkulaðið er bráðið.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Sælgætiskrans

4 dl mjólkdl
75 g smjör
5 tsk þurrger
1 stk egg
3 msk sykur
400 g hveiti
75 g súkkulaði gróft saxað
75 g döðlur skornar smátt
2 msk sykur
1 stk egg
3 msk perlusykur
25 g möndluspænir

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð