Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Ljúffengar smjörbollur

Ljúffengar smjörbollur

Matreiðsluleiðbeiningar

sundurslegið egg til að pensla með möndluspænir og /eða perlusykur til skrauts 30 lítil form, t.d. álform Myljið gerið í skál og hellið mjólkinni yfir, hrærið þar til gerið hefur jafnast út. Blandið 4 dl. af hveiti saman við. Breiðið klút yfir skálina og látið hefast á hlýjum stað í u.þ.b. 30 mín. Hrærið smjöri, sykri og eggjum saman við og að lokum hveiti en ekki öllu í einu þar sem ekki er víst að þörf sé á því. Hafið deigið það blautt að það rétt losni frá borðinu. Blandið saman öllu sem á að fara í fyllinguna. Setjið örlítið af fyllingu í botninn á hverju móti. Hnoðið deigið á hveitistráðu borði. Skiptið deiginu í tvennt. Mótið hlutana í lengjur og skiptið hverri lengju í 15 bita. Mótið bollur úr bitunum og setjið bollu í hvert álform. Þrýstið því sem eftir er af fyllingunni niður í bollurnar, notið tvær teskeiðar eða klippið rauf með skærum og setjið fyllinguna í. Breiðið klút yfir og látið hefast á hlýjum stað í u.þ.b. 45 mín. Hitið ofninn í 250°C. Penslið bollurnar með eggi, stráið sykri og hnetuspónunum yfir. Bakið í u.þ.b. 8 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Ljúffengar smjörbollur

2 dl mjólk ylvolg dl
50 g ger
4 dl hveiti dl
1 dl sykur dl
200 g smjör
3 stk egg
6 dl hveiti dl
0 g fylling:
150 g smjör mjúkt
1,5 dl sykur dl
1 tsk vanillusykur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð