Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Kryddaður ostavafningur

Kryddaður ostavafningur

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið gerinu saman við 1 bolla af hveitinu. Hitið saman mjólk, salt og 2 msk. smjör þar til smjörið er bráðið. Setjið volga mjólkurblönduna saman við hveiti/ger blönduna ásamt 1/2 bolla af osti og 1 eggi. Hrærið 1/2 bolla af hveiti saman við. Breiðið klút yfir skálina og látið deigið hefast á hlýjum stað í 1 1/2 klst. Setjið nú smjörið á pönnu og látið hvítlaukinn krauma þar í smá stund. Hrærið tarragoni og steinselju saman við og kælið lítið eitt. Hnoðið deigið og bætið hveiti í sem þarf til að gera það viðráðanlegt. Fletjið það út í 50x24 cm ferhyrning og penslið með hvítlaukssmjörinu. Dreifið 1/2 bolla af osti yfir og rúllið deiginu upp frá langhliðinni. Kljúfið nú rúlluna með beittum hníf eftir endilöngu. Setjið lengjurnar hlið við hlið með skurðflötinn upp. Penslið enda annarrar með vatni og þrýstið að enda hinnar. Vefjið lengjunum saman með skurðflötinn upp. Leggið í hring á plötu klædda bökunarpappír, og þrýstið endunum vel saman. Breiðið klút yfir vafninginn og látið hefast á hlýjum stað í 1 klst. Bakið í 175°C í 25 mín. Penslið með sundurslegnu egginu og bakið áfram í 5-10 mín. Kælið smástund og berið vafninginn fram volgan. Ostavafninginn má frysta. Látið hann þá þiðna við stofuhita, penslið með vatni og vefjið álþynnu utan um. Hitið í 10-15 mín., við 160°C.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kryddaður ostavafningur

12 g þurrger
2,5 bolli hveiti
0,8 bolli mjólk
30 g smjör
1 tsk salt
200 g óðalsostur rifinn
1 stk egg
1 stk hvítlauksgeirar fínt saxaðir
50 g smjör
1 msk steinselja söxuð
0,25 tsk taragon steytt
1 stk egg

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð