Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Kotasæluterta

Kotasæluterta

Matreiðsluleiðbeiningar

Setjið bökunarpappír í botninn á klemmuformi 24 sm. í þvermál. Blandið saman kexmylsnu, hnetum, sykri og smjöri, og þrýstið í botninn á forminu. Bakið í 10 mín. til að fá botninn stökkan en þarf ekki. Kælið. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Þeytið egg og sykur þar til létt og ljóst . Blandið kotasælu, hýði og sítrónusafa saman við eggin. Kreistið vatnið af matarlímsblöðunum og bræðið þau, blandið þeim saman við hræruna. Þeytið rjómann og blandið honum varlega saman við hræruna þegar hún fer að þykkna. Hellið yfir kexbotninn. Kælið í nokkrar klukkustundir áður en kakan er tekinn úr forminu. Skreytið með þeyttum rjóma og ferskum berjum.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kotasæluterta

150 g hafrakexmylsna
50 g hnetukjarnar hakkaðir
4 msk sykur
75 g smjör, brætt
5 stk matarlímsblöð
2 stk egg
300 g kotasæla gr
4 msk sykur
34 g sítrónusafi
30 g sítrónuhýði rifið
2,5 dl rjómi dl
100 g ber fersk
1 dl rjómi dl

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð