Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Kotasælubollur

Kotasælubollur

Matreiðsluleiðbeiningar

Skraut: Sesam eða hörfræ. Látið gerið jafnast út í volgri mjólkinni. Bætið smjöri, salti og sykri út í. Blandið sesamfræum eða hörfræum, kotasælu og hluta af hveitinu út í. Hrærið vel. Stráið hveiti yfir og látið hefast undir klút á hlýjum stað í 30-40 mín. Sláið deigið niður með sleif. Hnoðið meira hveiti upp í deigið en ekki öllu í einu þar sem ekki er víst að þörf sé á því öllu. Hafið deigið það blautt að það rétt losni frá borðinu. Mótið bollur og setjið þær á smurða bökunarplötu og látið þær hefast undir klút í 15-20 mín. Penslið bollurnar með sundurslegnu eggi og stráið sesamfræum yfir. Bakið í u.þ.b. 12 mín. við 225°C.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kotasælubollur

30 g smjör, brætt
50 g ger
5 dl mjólk volg dl
100 g kotasæla gr
1 tsk salt
0,5 msk sykur
3 msk sesamfræ
650 g hveiti
1 stk egg

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð