Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Kaka frá Sikiley

Kaka frá Sikiley

Matreiðsluleiðbeiningar

Þeytið saman eggjarauður, sykur og sítrónuhýði þar til létt og ljóst. Blandið hveiti og maizenamjöli varlega í með sleikju, þá vatni. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við deigið. Hellið deiginu í vel smurt og hveitistráð formkökumót. Bakið við 175°C í u.þ.b. 45 mín., látið kólna. Leggið matarlímsblaðið í bleyti. Setjið kotasæluna í blandara í nokkrar mín. Þeytið kotasælu, sykur, rjóma og líkjör saman. Blandið ávöxtum og súkkulaði saman við. Bræðið matarlímið og blandið því í ostahræruna. Kælið. Kljúfið kökuna í fernt. Leggið hana saman með ostakremi á milli. Látið standa í kælir í allt að 2 klst. Bræðið súkku- laðið í kaffinu við vægan hita. Dragið súkkulaðið af hitanum og hrærið köldu smjörinu saman við smátt og smátt. Hrærið þar til kremið er létt og glansandi. Kælið. Smyrjið kremi yfir alla kökuna og sprautið því sem eftir er til skrauts. Látið kökuna standa í kæliskáp í u.þ.b.24 klst. áður en hún er borin fram.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Kaka frá Sikiley

7,2 stk eggjarauður
2,5 dl flórsykur dl
0,5 stk sítrónuhýði rifið
1,25 dl hveiti dl
0,5 dl maísennamjöl dl
2 msk hveiti
2 msk vatn heitt
4 stk eggjahvítur
0 g fylling:
1 stk matarlímsblöð
500 g kotasæla gr
2 msk rjómi
0,5 dl sykur dl
45 g mandarínuostakaka
3 msk ávextir þurrkaðir saxaðirmsk
50 g suðusúkkulaði saxað
0 g krem:
250 g suðusúkkulaði
1 dl kaffi sterkt dl
175 g smjör kalt

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð