Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Hádegisverðarbrauð

Hádegisverðarbrauð

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið saman í hrærivélarskál, mjólk, smjöri og súpudufti grænmetis- eða lauksúpu. 100 g pressuger eða 25 g þurrger. Leysið gerið upp í vatninu, og blandið í mjólkurblönduna ásamt salti og eggi. Hrærið 1 1/2 bolla af hveiti og lyftidufti saman við. Hrærið vel. Bætið 1 bolla af hveiti í.Hrærið. Setjið með skeið í smurt hringlaga formkökumót. Breiðið klút yfir og látið hefast á hlýjum stað í u.þ.b. 1 klst. Penslið varlega með salatolíu. Skerið með beittum hníf eða klippið djúpar raufar í deigið með jöfnu millibili, þannig að á milli hverra tveggja raufa sé hæfilegur skammtur af brauði fyrir einn. Hitið ofninn í 190°C. Bakið brauðið í 30-35 mín. Kælið örlítið. Takið brauðið úr forminu og berið það fram vel volgt. Brjótið brauðið eftir raufunum.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Hádegisverðarbrauð

0,5 bolli mjólk
100 g smjör, brætt
1 pk grænmetissúpa:
100 g pressuger
0,5 bolli vatn volgt
1 stk egg
2 bolli hveiti
1,11 tsk lyftiduft
0,5 tsk salt
1 msk salatolía

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð