Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Gljáð eplakaka

Gljáð eplakaka

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 200°C. Fletjið smjördeigið út og skerið út hringlaga köku, 22 cm þvermál. Setjið í botninn og upp með brúnunum á 19 cm bökumóti. Geymið utanafskurðinn af deiginu. Breiðið sultuna yfir deigið í mótinu. Skerið eplin í þunna báta og veltið upp úr sykur- og kanilblöndu. Raðið í botninn á mótinu. Hrærið smjör og sykur þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum í og hrærið vel. Sigtið saman hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft og blandið í hræruna. Jafnið hrærunni yfir eplin. Leggið utanafskurðinn af deiginu yfir hræruna og bakið í 30-35 mín. Hrærið sultu og vatn saman og penslið yfir heita kökuna þegar hún er tekin úr ofninum. Hrærið saman flórsykur og sítrónusafa og penslið yfir kökuna þegar hún er orðin köld. Berið kökuna fram með þeyttum rjóma.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Gljáð eplakaka

0 g botnar:
1 pk smjördeig pk
1 msk berjasulta
0 g fylling:
2 stk epli
3 tsk sykur
0,5 tsk kanill
100 g smjör
1,5 dl flórsykur dl
2 stk egg
5 msk kartöflumjöl
1 dl hveiti dl
1,11 tsk lyftiduft
2,5 msk apríkósusulta
1 tsk vatn
3 msk flórsykur
1 tsk sítrónusafi

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð