Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Frönsk jógúrtkaka með grískri jógúrt

Frönsk jógúrtkaka með grískri jógúrt

Góð kaka sem má skreyta með marglitum marenstoppum. Kakan er einnig einstaklega góð með hreinni grískri jógúrt og ískaldri mjólk.

Matreiðsluleiðbeiningar

Jógúrtkaka aðferð:

Hitið ofninn í 180°C, með undir- og yfirhita. Smyrjið meðalstórt hringlaga smelluform (25 cm) með smjöri og stráið örlitlu hveiti í það. Takið fram stóra skál og þeytið sykurinn og mjúkt smjörið vel saman. Hrærið egg, jógúrt og vanilludropa saman við. Sigtið hveiti, lyftiduft og matarsóda yfir og hrærið því saman við.
Hellið deiginu í mótið og jafnið með sleikju. Bakið í u.þ.b. 45 mínútur. Fylgist vel með kökunni á meðan hún er að bakast og gætið þess að hún brenni ekki. Ef hún er að verða of dökk er hægt að leggja álpappír eða smjörpappír yfir hana. Takið kökuna úr ofninum. Látið hana standa í minnst 5 mínútur áður en hún er losuð úr mótinu. Látið kökuna kólna áður en hún er skreytt með sultu að eigin vali, þeyttum rjóma og marglitum marenstoppum.
Marenstoppar aðferð:
Hitið ofnin í 120°C. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær verða hálfstífar. Bætið sykrinum smátt og smátt saman við með teskeið. Þeytið áfram þar til marensinn er orðinn alveg stífur. Skiptið marensinum í nokkrar skálar, jafnmargar og litirnir sem á nota til þess að lita hann. Bætið nokkrum dropum af lit í hverja skál og blandið honum varlega saman við. Setjið marensinn með teskeið á smjörpappír, passið að hafa nóg pláss á milli toppanna. Lækkið hitann á ofninum í 100 gráður og bakið toppanna í 100 mínútur. Ef þið eruð með tvær plötur í einu í ofninum er gott að snúa þeim við og færa neðri plötuna upp og þá efri niður. Takið toppanna úr ofninum og látið þá kólna.


Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Jógúrtkaka

100 gr mjúkt smjör, skorið í litla bita og smá til viðbótar til að smyrja kökumótið að innan
170 gr sykur
2 egg
250 gr grísk jógúrt við stofuhita
1 tsk vanilludropar
240 gr hveiti
1,5 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
250 ml sulta, t.d kirsuberja-, rifsberja-, eða sólberjasulta
250 ml rjómi, þeyttur, eða hrærð grísk jógúrt
 

Marenstoppar

4 eggjahvítur meðalstórar
175 gr sykur
0 matarlitur í ýmsum litum

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð