Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Ensk kúrenukaka

Ensk kúrenukaka

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 175°C. Látið kúrenur og rúsínur í sjóðandi vatn og látið sjóða í u.þ.b. 1 mín. Skolið þær úr köldu rennandi vatni og látið leka vel af þeim. Setjið þær í skál og blandið smá hveiti saman við þær. Hrærið smjör og sykur þar til létt og ljóst. Setjið eggin í eitt í einu og hrærið vel í á milli. Blandið ávöxtum, kanil, sítrónuhýði, hveiti og lyftidufti út í, og að síðustu koníaki. Setjið í smurt brauðmylsnustráð formkökumót. Bakið í u.þ.b. 60-70 mín. Kælið lítið eitt áður en kakan er tekinn úr mótinu og látinn kólna á bökunargrind. Látið kökuna bíða í 3-4 daga áður en hún er borin fram. Geymist vel í einn til tvo mánuði.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Ensk kúrenukaka

200 g kúrenur
200 g rúsínur
240 g hveiti
200 g smjör
2 dl sykur dl
4 stk egg
2 tsk kanill
30 g sítrónuhýði rifið
1,11 tsk lyftiduft
0,5 dl koníak dl

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð