Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Bakstur
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Bakstur > Bananasítrónukaka

Bananasítrónukaka

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 175°C. Penslið tvö eða eitt 24 cm klemmuform með smjöri. Hrærið smjör og sykur þar til létt og ljóst. Bætið eggjunum í,einu í einu, og hrærið vel í á milli. Blandið sítrónuhýðinu saman við. Sigtið saman hveiti, lyftiduft og salt. Blandið saman í skál stöppuðum banönum, mjólk og vanilludropum, og blandið saman við smjörhræruna til skiptis við hveitið. Blandið hnetunum saman við. Setjið deigið í formin og bakið neðarlega í ofninum í 30-35 mín., ef um er að ræða tvö form en í 45 mín. ef notað er eitt form. Látið kólna lítillega áður en botnarnir eru teknir úr formunum. Krem: Hrærið saman rjómaost og smjör. Bætið mjólk, vanilludropum og salti í, þá sítrónuhýði og safa. Bætið flórsykrinum í smátt og smátt. Hrærið þar til hræran verður létt og ljós. Ef notað var eitt form er botninn klofinn í tvennt. Leggið botnana saman með kreminu og smyrjið því utan á og yfir kökuna. Ekki hafa kremið alveg slétt

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Bananasítrónukaka

2,25 bolli hveiti
1,38 tsk lyftiduft
0,5 tsk salt
100 g smjör mjúkt
1 bolli sykur
0,5 bolli púðursykur ljós
2 stk egg
0,5 tsk sítrónuhýði rifið
1 stk bananar stappaðir
1 tsk vanilludropar
0,25 bolli mjólk
187,5 g hnetur saxaðar
0 g krem:
100 g rjómaostur
50 g smjör
2 msk mjólk
1 tsk vanilludropar
0,1 tsk salt
450 g flórsykur
1,5 tsk sítrónuhýði rifið
4 msk sítrónusafi

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð