Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Grænmetisréttir > Gratín með blönduðu grænmeti

Gratín með blönduðu grænmeti

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 200°C. Skerið einn hvítlauksgeirann í tvennt og nuddið 1/2 geiranum í botninn og upp með börmunum á eldföstu móti. Smyrjið mótið með smjöri. Saxið það sem eftir er af hvítlauknum. Blandið öllu grænmetinu saman í skál. Kryddið vel með salti og pipar. Hitið saman rjóma og rjómaost þar til osturinn er bráðinn. Setjið helminginn af grænmetinu í mótið og hellið hluta af heitum vökvanum yfir, þá það sem eftir er af grænmetinu, þá því sem eftir er af heitum vökvanum. Hyljið grænmetið alveg. Bakið í 40 mín. Ath. að allt grænmetið sé í jöfnum bitum þannig að allt sé jafnt soðið.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Gratín með blönduðu grænmeti

4 stk hvítlauksgeirar
15 g smjör
450 g kartöflur afhýddar og sneiddar
115 g gulrætur sneiddar
225 g sellerí sneitt
225 g næpur þunnar sneiðar
115 g gulrófur þunnar sneiðar
1 tsk múskat
2 dl rjómi dl
200 g rjómaostur hreinn
0,5 tsk salt
0,25 tsk pipar malaður

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð