Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Grænmetisréttir > Gljáðar kartöflukúlur

Gljáðar kartöflukúlur

Matreiðsluleiðbeiningar

Afhýðið kartöflurnar. Mótið litlar kúlur úr kartöflunum með lítilli kúluskeið. Setjið kúlurnar í skál með köldu vatni.1/2 klst. áður en maturinn er borinn fram, setjið kartöfluranr í pott og vatn þannig að fljóti yfir. Látið suðuna koma upp og látið sjóða í 2 mín.. Hitið olíu og smjör á pönnu. Látið leka vel af kartöflunum og látið þær krauma í feitinni í u.þ.b. 10 mín. Hreyfið þær til á pönnunni. Hellið feitinni af pönnunni og bætið Demi Glace út á pönnuna. Látið kartöflurnar malla í sósunni, þar til þær verða gljáðar. Stráið salti yfir. Þessar kartöflur eru ekki góðar upphitaðar.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Gljáðar kartöflukúlur

6 stk kartöflur bökunar stórar
3 msk smjör
1,5 msk ólífuolía
4 msk demi glace
0,25 tsk salt

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð