Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Grænmetisréttir > Fyllt eggaldin

Fyllt eggaldin

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 190°C. Skerið eggaldinið í tvennt og skerið aldinkjötið innan út en skiljið eftir 1/2 cm lag á hýðinu. Skerið aldinkjötið í bita. Dreypið sítrónusafa í eggaldins- helmingana. Látið laukinn krauma í hluta af smjörinu þar til hann er mjúkur, bætið tómötum, hvítlauk og steinselju saman við. Látið krauma í 5 mín., bætið eggaldini, múskati og basil saman við. Bætið örlitlu vatni út í ef þarf. Setjið lok á og látið malla í 8-10 mín..Dragið af hitanum. Blandið rækjunum saman við. Kryddið með salti, pipar og tabasco sósu. Smyrjið eldfast mót með smjöri, hellið sítrónusafanum úr eggaldinshelmingunum og raðið í mótið. Stráið brauðmylsnu yfir hýðið og jafnið fyllingunni í, stráið brauðmylsnu og osti yfir. Setjið smjörið, sem eftir er, í litlum bitum yfir. Bakið í 20-25 mín. Berið fram strax með hrísgrjónum.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Fyllt eggaldin

2 stk eggaldin jafnstór
2 msk sítrónusafi
50 g smjör
250 g rækjur
6 stk karlottulaukur sneiddur þunnt
3 stk tómatar saxaðir
1 stk hvítlauksgeirar pressaðir
3 msk steinselja fersk söxuð
3,75 msk basil ferskt saxað
0,5 tsk pipar
0,5 tsk salt
0,5 tsk pipar
1 tsk tabasco sósa
0,5 bolli brauðmylsna ókrydduð
2 msk parmesan ostur

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð