Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Grænmetisréttir > Cannelloni með osti og sósu

Cannelloni með osti og sósu

Matreiðsluleiðbeiningar

Hitið ofninn í 175°C. Látið hvítlaukinn krauma í smjörinu í nokkrar mín. Bætið öllu út í sem í fyllinguna fer, nema eggi, 50 g óðalsostinum, parmesan, kotasælu og tómötum. Látið krauma í 5-6 mín. hrærið í öðru hverju. Hrærið saman í stórri skál eggi og óðalsosti sem eftir er, bætið tómötum og grænmeti út í. Setjið hræruna í canneloni rörin og raðið þeim í eldfast mót, Setjið fyllinguna sem gengur af, meðfram og yfir. Bakið upp sósuna úr smjöri, hveiti og mjólk og kryddið með salti og pipar. Bætið mozzarella, steinselju og basil út í. Hrærið í þar til osturinn er bráðinn. Hellið sósunni yfir canneloníið. Stráið parmesan yfir. Bakið í 30-35 mín.. Ath: Hægt er að nota lasagne blöð í stað canneloni. Þá þarf að sjóða blöðin setja fyllinguna á og rúlla þeim upp. 1 tsk ferskt oregano eða þ tsk þurrkað. 2 msk ferskt basil eða ½ tsk þurrkað.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

Cannelloni með osti og sósu

8 stk canneloni
0 g fylling:
2 msk smjör
1 stk hvítlauksgeirar pressaðir
1 stk zucchini sneiðar
1 stk paprika gróft söxuð
1 stk rauðlaukur saxað
0,8 tsk salt
0,5 tsk pipar
2 msk basil ferskt saxað
1 tsk oregano ferskt saxað
1 stk egg sundurslegin
125 g óðalsostur rifinn
0,5 bolli parmesan ostur ferskur rifinn
350 g kotasæla gr
3 stk tómatar velþroskaðir saxaðir
0 g sósa:
2 msk smjör
2 msk hveiti
0,5 tsk salt
0,5 tsk pipar
3,5 dl mjólkdl
125 g mozzarella ostur rifinn
0,25 bolli steinselja söxuð
1 msk basil ferskt saxað
2 msk parmesan ostur ferskur rifinn

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð