Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Vörunýjungar
18. janúar 2012

Nýjung - Heimilisostur rifinn

Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af gæðablöndu af Mozzarellaosti og Goudaosti, blanda sem ómissandi er á pizzuna, ofn- og eða pastaréttinga eða bara út á salatið.   Til baka
24. október 2011

Nýjung - Ostakubbar

Skemmtileg vörunýjung er nú komin á markað undir vörumerkinu Gott í matinn, ostakubbar í 200 g pokum. Það eru nánast engin takmörk fyrir möguleikum ostakubbanna, hægt er að nota þá út í salatið, í nestiboxið, á ostapinnann og út í heita rétti svo eð sé nefnt. Sniðugar samsetningar að ostapinnum er að finna á umbúðunum sem ættu að aðstoða neytendur við að setja saman skemmtilegan ostabakka úr kubbunum. Til baka
27. september 2011

Óskajógúrt með kókos

Óskajógúrtin hefur verið á markaði í fjöldamörg ár og ávallt notið mikilla vinsælda meðal neytenda, nú hefur bæst við ný bragðtegund í hópinn í 170 g umbúðum, Óskajógúrt með kókos og fer nýjungin vel af stað. Óskajógúrt er fáanlegt í mörgum bragðtegundunum og því geta allir fundið eð við sitt hæfi. Til baka
27. september 2011

Ný bragðtegund - KEA skyr með karamellu

Á dögunum kom á markað ný bragðtegund í KEA skyrlínuna, KEA skyr með karamellu í 200 g dós og hafa neyrendur tekið nýju bragðtegundinni einkar vel. Kea skyr fæst í fjölmörgum bragðtegundum svo að auðvelt er fyrir neytendur finna bragð við sitt hæfi. Kea skyr er framleitt hjá MS Akureyri. Til baka
27. september 2011

MS smurostar í nýjar umbúðir og tvær nýjar bragðtegundir

Nýverið fór smurostalínan frá MS á markað í nýjum, endurhönnuðum umbúðum í 250 gr. dósum. Lögð var áhersla á léttleika í útliti, aðgreiningu milli tegunda og aðgreiningu á milli smurosts og léttsmurost. Tvær nýjar bragðtegundir: MS Texmex smurostur með kraftmiklu chili bragði. Hann ætti að koma að góðum notum við hvers konar matargerð og eða á kexið og heita ostabrauðið. Einnig er hann sérlega góður út í heitar eða kaldar ostasósur með mexíkóskum mat. Önnur spennandi nýjung í þessari ostalínu er léttsmurostur með papriku.         Til baka
12. júlí 2011

Kryddsmjör - tvær nýjar bragðtegundir

Tvær frábærar bragðtegundir hafa nú bæst við vinsælu kryddsmjörslínuna frá MS, k ryddsmjör með béarnaise og kryddsmjör með sítrónu. Béarnaise-smjörið er með fínu béarnaise bragði, ómissandi í alvöru steikur og gott er að setja smá klípu af því á kartöflurnar. Sítrónusmjörið er ferskt og frísklegt. Sítrónusmjörið passar vel með fiski og er gott að setja væna klípu af því á grillaða grænmetið. Til baka
11. júlí 2011

Gráða og feta ostateningar í olíu

Skemmtileg vörunýjung er nú komin á markað frá MS, gráða og feta ostateningar í olíu sem gráðaostaaðdáendur hljóta að fagna. Ostateningarnir eru í 325 gr. krukkum. Þennan ost er gott að hafa með kartöflusalati, á pítsuna og í góðar rjómakenndar súpur. Til baka
6. júlí 2011

Nýjung - Fetakubbur

Vörunýjung - Fetakubbur 250 g Á dögunum kom á markað fetakubbur í 250 g bita. Osturinn er ókryddaður, ferskur og frísklegur í bragði. Gott er að nota ostinn í hverskonar salöt, grænmetisrétti og á pítsuna. Einnig er hægt að skera ostinn niður og búa til sinn eigin kyddlög með ólífuolíu og uppáhalds kryddi hvers og eins og blanda saman við ostinn. Til baka
15. júní 2011

Fjörmjólk í nýjum umbúðum og nú með tappa

Fjörmjólkin er nú komin í nýjum fernum með skrúfuðum tappa. Aðeins hefur verið frískað upp á umbúðahönnun, sem verður þó með sama yfirbragði og fyrr.   Fjörmjólk hefur verið á markaði síðan í október 1993 og notið mikilla vinsælda, enda fitulaus og kalkrík og einstaklega bragðgóð mjólk.   Fjörmjólk – Próteinrík og fitulítil Fjörmjólkin inniheldur aðeins 0,3% fitu.  Hún inniheldur meira af próteinum og kalki en önnur mjólk. Í hana er bætt A- og D-vítamíni.   Fjörmjólk – Kalkrík og D-vítamínbætt Fjörmjólk er A og D vítamínbætt mjólk, auðug af próteinum og kalki, en fitulaus.  D-vítamín er mikilvægt vítamín sem skortir almennt í fæði Íslendinga. Meðal hlutverka þess er að hjálpa til við að vinna kalk úr fæðunni, og hentar því vel að bæta því í vöru sem er í grunninn kalkrík eins og Fjörmjólkin er.     Til baka
16. maí 2011

Hleðsla með kókos og súkkulaði

Hafin er sala og dreifing á nýrri bragðtegund í Hleðslu í 250 ml dósum, Hleðsla með kókos og súkkulaði. Hleðsla inniheldur hágæða mysuprótein og kolvetni til hleðslu sem henta vel eftir æfingar og einnig sem millimáltíð. Hleðsla í 250 ml dósum fæst nú í þremur bragðtegundum, kókós/súkkulaði, jarðarberja og vanillu. Einnig er Hleðsla fáanleg í 250 ml fernum, í tveimur bragðtegundum, jarðarberja og létt karamellubragð. Skammturinn inniheldur 22 g af 100% hágæða mysupróteinum sem eru talin henta sérstaklega vel til vöðvauppbyggingar auk annarra mikilvægra eiginleika. Til baka
19. apríl 2011

Matreiðslurjómi með tappa

Nú er matreiðslurjóminn kominn í nýjar umbúðir með tappa, að auki hefur geymsluþol vörunnar aukist úr 10 dögum í 12 daga. Matreiðslurjómi er oft einmitt það sem vantar til að setja punktinn yfir i-ið, gera sósuna silkimjúka og ljúffenga, breyta hversdagslegum pottrétti í sælkeramat eða galdra fram himneska súpu.  Til baka
18. apríl 2011

Létt ab mjólk í 1/2 lítra

Á dögunum kom á markað létt ab-mjólk í ½ lítra umbúðum og er hún nú fáanleg í 1 lítra og ½ lítra umbúðum.   ab-vörurnar eru þróaðar með það fyrir augum að gegna lykilhlutverki í mataræði nútímafólks. Þær eru svokölluð markfæða sem býr yfir sérhæfðum eiginleikum sem er sérstaklega ætlað að hafa jákvæð áhrif á heilbrigði.  a- og b-gerlar gegna margþættu uppbyggjandi hlutverki í líkamanum stuðla að betri meltingu draga úr óæskilegum afleiðingum af inntöku sýklalyfja vinna gegn óheppilegum bakteríum og sveppum í meltingarveginum Nánari upplýsingar má sjá með því að smella á tengilinn http://www.ms.is/Naering-og-heilsa/Fraedsla/Greinar-og-fyrirlestrar/352/default.aspx   Til baka
22. febrúar 2011

Hleðsla í 250 ml fernum

Hafin er sala og dreifing á Hleðslu í fernum, geymsluþolinni útfærslu af Hleðslu sem kom á markað fyrir réttu ári síðan. Hleðsla er í 250 ml. fernum og fæst í tveimur bragðtegundum, jarðarberja og létt karamellu.   Nánar um Hleðslu og hlutverk próteina og kolvetna: Ein ferna af Hleðslu inniheldur 22 gr. af 100% hágæða mysupróteinum, framleidd úr íslenskri mjólk. Þau eru talin henta sérstaklega vel til vöðva uppbyggingar auk annarra mikilvægra eiginleika. Hleðsla er jafnframt án hvíts sykurs og sætuefna og inniheldur agavesafa.  Prótein í fæðunni eru samansett úr 20 amínósýrum, þar af eru 9 lífsnauðsynlegar. Þessar amínósýrur gegna mörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum. Þær eru t.d. grunneiningar líkamspróteinanna, sem eru m.a. byggingarefni vöðva og beina.   Kolvetni eru mikilvægasti orkugjafi líkamans, og eru geymd í líkamanum á formi glýkógens, sem er forðabúr fyrir kolvetni og er m.a. að finna í vöðvum og lifur. Til marks um mikilvægi kolvetna sem orkugjafa, þá má benda á að heilinn nýtir aðeins kolvetni sem orkugjafa, en ekki prótein eða fitu.  Nánari upplýsingar um Hleðslu má sjá með því að smella á tengilinn: Hleðsla íþróttadrykkur í fernu Til baka
27. október 2010

Hrísmjólk - ný braðgtegund

Hrísmjólk með rifsberja og hindberjasósu hefur bæst við hrísmjólkurlínuna. Hrísmjólk er hluti af MS eftirlæti sem er eftirréttalina MS, línunni tilheyra einnig ostakökurnar sívinsælu og smámálið þar sem einnig bættist við ný bragðtegund á dögunum, smámál með karamellu . Hrísmjólkin á sér marga aðdáendur og hafa bragðtegundirnar tvær sem fyrir eru á markaði notið mikill vinsælda meðal neytenda. Hrísmjólk verðu nú fáanlega í þremur bragðtegundum, hrísmjólk með karamellusósu, með kanilsósu og svo nýjasta viðbótin hrísmjólk með risberja og hindberjasósu. Til baka
12. október 2010

Smámál með karamellu - ný bragðtegund

Smámálið með súkkulaðibragðinu þekkja margir og hefur það átt sinn sess sem eftirréttur eða millimál hjá mörgum í fjölda ára. Smámál verður nú hluti af eftirréttalínu Mjólkursamsölunnar en þar eru ostakökurnar landsþekktar. Nú er komin ný bragðtegund, Smámál með karamellum. Um áramóti fær súkkulaðismámálið andlitslyftingu og fær sama útlit og ofangreint smámál. Til baka
26. mars 2010

Ný bragðtegund í ostakökum - Ostakaka með karamellu

Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar eru með vinsælli eftirréttum Íslendinga og þykja líka góðar einar sér með ilmandi kaffi eða kakói svo eð sé nefnt. Ostakökuumbúðirnar eru með glugga þar sem bragðþekjan blasir við á girnilegan máta. Ostakökurnar eru í álformi sem auðvelt er að fjarlægja og því tilvalið að setja ostakökuna á fallegan kökudisk, skreyta með berjum t.d og bera fram á augabragði við hin ýmsu tilefni.  Nú geta unnendur ostakaka valið á milli sex bragðtegunda, tegundirnar sem fyrir eru á markaðnum eru; Bláberja-, Mandarínu-, Súkkulaði-, Sælkerakaffi og súkkulaðiflögu- og Hindberjaostakaka, ásamt nýjunginni:. Ostaköku með karamellu. Til baka
26. mars 2010

Nýjung frá MS - Dala hringur

Nýr mygluostur á markað fyrir páska ! Unnendur hvítmygluosta hafa nú nýtt afbrigði úr að velja en á markaðinn er kominn nýr hvítmygluostur frá Mjókursamsölunni, Dala hringur, osturinn er hringlaga hvítmygluostur (penicillium candidum) þar sem búið er að fjarlægja kjarna ostsins og er hann með gati í miðjunni. Lögunin á Dalahring gerir það að verkum að hann þroskast hraðar og verður fyrr tilbúinn til neyslu en aðrir mygluostar á markaði. Osturinn er bragðmildur, mjúkur og kærkomin viðbót í mygluostaflóruna. Í nafninu Dalahringur er auk lögunar ostsins skírskotað til Dalanna og Búðardals þar sem hann er framleiddur ásamt öllum mygluostum í flóru íslenskra desertosta. Osturinn er nú fáanlegur í öllum helstu matvöruverslunum landsins. Til baka
24. apríl 2009

Nýjung - KEA skyrdrykkur með bláberjum

Í dag hófst sala og dreifing á nýrri bragðtegund í KEA skyrdrykkjarlínunni. KEA skyrdrykkur með bláberjum. Bláber eru ein helsta uppspretta andoxunarefna sem styrkja ónæmiskerfið og eru góð vörn gegn sjúkdómum. KEA skyrdrykkur með bláberjum er nýjasta viðbótin í skyrdrykkjar línuna sem samanstendur núna af fjórum bragðtegundum: með jarðarberjum og bönunum; með hindberjum og trönuberjum; með papaja, ferskjum og ástaraldinum; og með bláberjum. Jafnframt því að innihalda hvorki hvítan sykur né sætuefni hefur KEA skyrdrykkur meira magn ávaxta en aðrir sambærilegir drykkir en ávaxtainnihald í KEA skyrdrykk er allt að 10% samanborið við 3-5% í öðrum drykkjum. KEA skyrdrykkur inniheldur ennfremur meira magn mysupróteina en sambærilegar afurðir.     KEA skyrdrykkur hefur sérstöðu að því leyti að agavesafi, sem er unninn úr mexíkóskum kaktus, er notaður í stað venjulegs hvíts sykurs eða sætuefna.   KEA skyrdrykkur er framleiddur af MS á Akureyri og fæst í verslunum um land allt. Til baka
24. mars 2009

MS rjómi með tappa

MS rjóminn í 1/2 L umbúðum er nú með tappa. Þessar breytingar fela í sér aukin þægindi fyrir neytendur enda verður nú auðveldara að nota rjómann og geyma eftir notkun. Jafnframt eykst geymsluþol rjómans í 12 daga. Rétt er að taka fram að þrátt fyrir þessu auknu þægindi er verðið áfram óbreytt. Tappinn hefur engin áhrif í endurvinnslu og ekki þarf að taka tappann af áður en umbúðunum er skilað inn til endurvinnslu. Til baka
9. febrúar 2009

Skólaostur í sneiðum

Í síðustu viku hófst sala og dreifing á hinum sívinsæla Skólaosti í sneiðum. Ostur í sneiðum verður sífellt vinsælla meðal neytenda og er Skólaostur í sneiðum því tilvalin viðbót í sneiðalínuna. Takmarkað magn verður á 10% kynningartilboði í öllum helstu verslunum landsins. Til baka
2. febrúar 2009

Skagfirskur Sveitabiti -Nýjung

Á næstu dögum hefst sala og dreifing á fyrstu ostanýjung ársins frá Mjólkursamsölunni, mildur og bragðgóður skagfirskur Sveitabiti. Sveitabitinn er einstaklega mjúkur ostur og mun mýkri en sambærilegir fastir brauðostar sem eru á markaðnum í dag. Sú nýjung er í umbúðahönnun Sveitabitans að upplýsingar um ostinn: innihald, verð, þyngd og fl. er að finna á miða undir umbúðunum (á bakhlið ostsins) Osturinn verður seldur í ca. 1,2 kg stykkjum í öllum helstu verslunum landsins. Til baka
23. september 2008

Ný Kea skyrdrykkur

Ný vöruflokkur er kominn á markað frá Mjólkursamsölunni. Um er að ræða KEA skyrdrykk sem inniheldur náttúrulegan agavesafa í stað viðbætts hvíts sykurs og sætuefna.  Jafnframt því að innihalda hvorki hvítan sykur né sætuefni hefur KEA skyrdrykkur meira magn ávaxta en aðrir sambærilegir drykkir en ávaxtainnihald í KEA skyrdrykk er allt að 10% samanborið við 3-5% í öðrum drykkjum. KEA skyrdrykkur inniheldur ennfremur meira magn mysupróteina en sambærilegar afurðir. KEA skyrdrykkur er í 250 ml dósum og fæst í þremur bragðtegundum: með jarðarberjum og bönunum; með hindberjum og trönuberjum; og með papaja, ferskjum og ástaraldinum.   Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á næstu þremur árum verði framboð á sykurskertum vörum í vöruframboði stóraukið og stefnt er að því að framboð af sykurskertum vörum verði yfir þrjátíu vörunúmer að þessum tíma loknum. Með sykurskertum vörum er átt við vörur þar sem búið er að draga úr magni viðbætts sykurs eins og kostur er, án þess að nota sætuefni í staðinn. Breytt stefna MS tekur einnig til aukins ávaxtamagns í sýrðum vörum og breyttum skammtastærðum í takt við manneldissjónarmið.   Nú þegar hafa komið nokkrar vörur á markað með minni sykri og án sætuefna. Þar má nefna sykurskertan jógúrtdrykk og sykurskerta Kókómjólk. Nú í sumar kom á markað Krakkaskyr en það fyrsta varan sem MS setur á markað þar sem magn ávaxta er aukið verulega ásamt því að skerða sykur. KEA skyrdrykkur hefur sérstöðu að því leyti að agavesafi, sem er unninn úr mexíkóskum kaktus, er notaður í stað venjulegs hvíts sykurs eða sætuefna.   KEA skyrdrykkur er framleiddur af MS á Akureyri og fæst í verslunum um land allt. Til baka
16. maí 2008

Létt G - mjólk. Aðeins 1,5% fituinnihald

Komin er á markað ný létt G-mjólk. G-mjólk hefur gengið einstaklega vel í sölu síðustu misserin og ætti þessi nýjung að vera kærkomin viðbót í flokkinn. MS Létt G-mjólk er með 1,5% fituinnihaldi eins og Léttmjólk og ætti því að höfða vel til þeirra sem hafa áhuga á fituminni vörum. Létt G-mjólkin er fáanleg bæði í 250 ml og 1 litra umbúðum. MS Létt G-mjólk er framleidd hjá MS Selfossi en sala og dreifing er í höndum MS Reykjavík. Aðrar G-mjólkurvörur frá Mjólkursamsölunni. Til baka
9. maí 2008

Sýrður rjómi með hvítlauk í sprautuflösku

Við höfum hafið sölu á  Sýrðum rjóma í sprautuflösku með hvítlauk.        Neytendur þekkja sýrða rjómann frá MS sem er orðinn fastur liður í fæðu landsmanna og er gífurlega vinsæll með mat og í alla matargerð. Sýrður rjómi er frábær með öllum mat, í sósur, salatið og sem ídýfa með snakki og grænmeti. Bragðbættur Sýrður rjómi er ennfremur ómissandi með grillmatnum.   Sýrður rjómi í sprautuflösku er í einstaklega handhægum og notendavænum umbúðum. Fyrir á markaði í sýrðum rjóma í 250 ml. sprautuflöskum er Sýrður rjómi 10% og Sýrður rjómi með graslauk og lauk. Uppskrift sem inniheldur sýrðan rjóma með graslauk og lauk Salat með sætum kartöflum, ab-mjólk og fetaosti Hollar og góðar sósur með sýrðum rjóma og hentar vel með grilluðum mat. Einnig góð sem ídýfa. Tómat- og kryddjurtasósa með sýrðum rjóma Tómat-basilíku-sósa með sýrðum rjóma   Til baka
10. mars 2008

Dala Feta - 20% meira magn en sama verð

Dala Feta línan er komin í nýjar umbúðir. Umbúðirnar eru notendavænni og með víðara opi svo auðveldara er að ná ostinum úr glösunum. Nýju umbúðirnar eru stærri eða 325 gr og því hefur magnið verið aukið um 20%. Rúsínan í pylsuendanum er þó að verðið mun haldast óbreytt frá því sem hefur verið.   Um er að ræða fjórar tegundir af Dala Feta; Dala Feta í kryddolíu, Dala Feta með tómötum og ólífum, Dala Feta með sólþurrkuðum tómötum og  Dala Feta með hvítlauk og kóríander Í hverju glasi eru 170 g af osti og 155 g af kryddaðri olíu. Dala-Feta er tilvalinn í salöt, sem snarl með ólífum, í ídýfur og í ýmsa gríska rétti og matargerð. Einnig er hann góður í ofnbakaða rétti og á pizzur svo fátt eitt sé talið upp.   Í tilefni nýrra umbúða munum við keyra á lukkunúmeraleik, en lukkunúmer er prentað á bakhlið miðans og kemur númerið í ljós þegar innihald í krukkunni minnkar. Á ostur.is er síðan hægt að slá númerið inn í þar til gerðan reit og viðkomandi sér strax hvort hann hefur unnið eða ekki. Til baka
10. mars 2008

Skyr.is drykkur í fernu með tappa

Nú er kominn á markað Skyr.is drykkur í 1/1 ltr. fernum með tappa. Varan er nýjung í Skyr.is drykkjar flokknum og býður upp á þægilega lausn á neyslu heima við, ísköld beint úr ísskápnum í glasið.   Eins og aðrar vörur í flokknum er Skyr.is drykkurinn prótínríkur og fitusnauður. Skyr.is drykkurinn fæst í tveimur bragðtegundum:  Jarðarberja  Mangó og ástaraldin (án viðbætts sykurs) Til baka
22. febrúar 2008

Kea skyr með hindberjum - Ný bragðtegund

Nýja bragðtegundin er með hindberjum og fæst bæði í 200 g og 500 g dósum Kea skyr fæst í fjölmörgum bragðtegundum svo að auðvelt er fyrir neytendur finna bragð við sitt hæfi. Nýja bragðtegundin fékk góðar viðtökur í bragðprófunum og mun án efa fá góðar viðtökur meðal fjölskyldna í landinu. Kea skyr er framleitt hjá MS Akureyri. Til baka
11. janúar 2008

Kotasæla í nýjar umbúðir

Komnar eru á markað nýjar umbúðir af kotasælu, breytingin felst eingöngu í umbúðum en ekki innihaldi. Kotasæla hrein eða bragðbætt er góð ein sér eða sem álegg og með grænmeti eða ávöxtum, passar vel í salöt og salatsósur, í bökudeig, hverskyns brauðbakstur og eftirrétti. Til baka
2. nóvember 2007

Létt - Húsavíkurjógúrt og ný umbúðastærð

Á næstu dögum kemur á markað ný bragðtegund í Létt - Húsavíkurjógúrti og ný umbúðastærð. Nýja bragðtegundin er með ferskjum og hindberjum og fæst bæði í ½ og 1 ltr. fernum. Á sama tíma kemur á markað Létt – Húsavíkurjógúrt með trefjum í 1 ltr. fernum. Húsavíkurjógúrt fæst í fjölmörgum bragðtegundum og nú geta neytendur valið um tvær mismunandi stærðir í tveimur bragðtegundum. Nýja bragðtegundin fékk góðar viðtökur í bragðprófunum og nýja umbúðastærðin mun án efa fá góðar viðtökur meðal fjölskyldna í landinu. Til baka
2. október 2007

Skyr.is

Á næstu dögum kemur á markað Skyr.is Dagmál. Varan er nýjung í Skyr.is flokknum og verður án ef vel tekið af neytendum.Eins og aðrar vörur í flokknum er Skyr.is Dagmál prótínríkt og fitusnautt. Dagmál er einstaklega bragðgott og létt í sér. Skyr.is Dagmál fæst í þremur bragðtegundum: • Jarðarberja • Hindberja og vanillu (án viðbætts sykurs) • Epla og peru (án viðbætts sykurs) Til baka
5. september 2007

Sykurskert Kókómjólk í flösku

Sykurskert Kókómjólk í flöskum er væntanleg á markað eftir helgi. Til að koma til móts við óskir neytenda kemur sykurskert Kókómjólk í flöskum komin á markað. Þegar Kókómjólk í flösku var markaðssett fyrr á árinu fékk hún afar góðar viðtökur á meðal neytenda og má búast við því að Sykurskert Kókómjólk í flösku fái sömuleiðis góðar viðtökur. Sykurskert Kókómjólk í flösku er helmingi léttari en venjuleg Kókómjólk. Hún er frábær kalkgjafi og rík af öðrum bætiefnum. Kókómjólk í flösku er kælivara, ekki G-vara og skal geymast í kæli við 0-4°C. Geymsluþol er 26 dagar. Til baka
21. ágúst 2007

Þykkmjólk með vanillu; Ný bragðtegund

Sala er að hefjast á Þykkmjólk með vanillu. Þykkmjólk hefur lengi notið mikilla vinsælda. Vonum við að þessi nýja bragðtegund muni verða kærkomin viðbót hjá neytendum. Þykkmjólk er framleidd hjá MS Selfossi, en sala og dreifing er í höndum MS Reykjavík. Til baka
25. júní 2007

Engjaþykkni með hnetum, karamellu og kornkúlum

Sala er að hefjast á nýrri tegund af Engjaþykkni! Engjaþykkni hefur notið mikilla vinsælda hjá ungum sem öldnum. Vonum við að þessi nýja tegund muni verða kærkomin viðbót hjá neytendum. Engjaþykkni er framleitt hjá MS Búðardal, en sala og dreifing er í höndum MS Reykjavík. Til baka
16. apríl 2007

LGG+ jógurt með jarðarberjabragði og bláberjabragði

Á næstu dögum hefjum við sölu á LGG+ jógúrti. LGG+ jógúrt er fitusnauð og bragðgóð máltíð og er án viðbætts sykurs. LGG+ jógúrt fæst í tveimur bragðtegundum með jarðarberjabragði og bláberjabragði. Frá því að LGG+  flöskurnar komu á markað hefur verið mikil eftirspurn eftir vörunni og hefur hún notið mikilla vinsælda meðal neytenda. Með tilkomu LGG+  jógúrts vonumst við til að efla enn frekar LGG+  flokkinn og fjölga neytendum. LGG+  hefur einstaka eiginleika: • Bætir meltinguna og kemur jafnvægi á hana • Mikið mótstöðuafl • Fjölþætt varnarverkun • Stuðlar að vellíðan Til baka
22. mars 2007

Léttur ab-drykkur með eplum og gulrótum

Á næstu dögum hefst sala á léttum ab-drykk í dós með epla- og gulrótarbragði. Léttur ab-drykkur í dós kom fyrst á markað í apríl 2006 og hefur frá upphafi verið vinsæll hjá neytendum. Nú bætist í hópinn ný bragðtegund með epla- og gulrótabragði. Léttur ab-drykkur með epla- og gulrótarbragði er án viðbætts sykurs og verður án efa góð viðbót við flokkinn. Líkt og aðrir drykkir í flokknum hefur hann lágt fituinnihald eða einungis 1,4%.  Léttur ab drykkur inniheldur hina heilnæmu og náttúrulegu a-mjólkursýrugerla (Lactobacillus acidophilus) og b-gerla (Bifidobacterium bifidum) sem bæta meltinguna og styrkja um leið varnir líkamans. Dagleg neysla létts ab drykkjar tryggir hæfilegt magn af a og b gerlum í meltingarveginum og stuðlar að bættu heilsufari og vellíðan. Til baka
9. febrúar 2007

Kókómjólk í flösku 320 ml.

Til að koma til móts við óskir neytenda kemur Kókómjólk í 320 ml flöskum á markað á næstu dögum. Kókómjólkin er einn næringarríkasti drykkur sem völ er á. Hún er frábær kalkgjafi og rík af öðrum bætiefnum. Kókómjólk er góð með mat eða bara ein sér og höfðar til allra aldurshópa. Kókómjólk í flösku er kælivara, ekki G-vara og skal geymast í kæli við 0-4°C. Geymsluþol er 26 dagar.  Til baka
5. janúar 2007

Létt súrmjólk með skógarberjabragði

Á næstu dögum mun Mjólkursamsalan ehf. hefja sölu á bragðbættri Létt súrmjólk með skógarberjabragði. Í dag eru fáanlegar fjórar mismunandi tegundir af bragðbættri súrmjólk sem notið hafa mikilla vinsælda og varan er því kærkomin viðbót við súrmjólkurflokkinn. Létt súrmjólk með skógarberjabragði er án viðbætts sykurs sem ætti að gera hana vinsæla fyrir þá sem kjósa léttu línuna og hún inniheldur einungis 42 hitaeiningar í 100 g. Varan hefur jafnframt þá sérstöðu að búið er að kljúfa yfir 80% af mjólkursykrinum og hentar hún því einnig fyrir flesta þá neytendur sem hafa mjólkuróþol. Við vonumst því til að þessi vara verði góð viðbót við þær tegundir sem fyrir eru á markaðinum. Bragðbætta Létt súrmjólkin er framleidd hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík, sem sér jafnframt um sölu og dreifingu á vörunni. Til baka
Leikir í gangi
Heppnar systur unnu flug ...
Nú í sumar var árlegur Sumarleikur Klóa í gangi. Öllum sexum af Kókómjólk í fernu fylgdi lukkumiði og var fjöldi vinninga í boði. Meðal vinninga...

Meira
Fleiri leikir
Landstilboð
Tilboð á Kókómjólk í lítr...
  Hafið er landstilboð á Kókómjólk í lítrafernu, verðlækkunin er 15% og er hægt að nálgast vöruna á tilboði í öllum helstu matvöruverslunum...

Meira
Fleiri tilboð
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar