Vörunýjungar
26. mars 2010
Ný bragðtegund í ostakökum - Ostakaka með karamellu
Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar eru með vinsælli eftirréttum Íslendinga og þykja líka góðar einar sér með ilmandi kaffi eða kakói svo eð sé nefnt. Ostakökuumbúðirnar eru með glugga þar sem bragðþekjan blasir við á girnilegan máta. Ostakökurnar eru í álformi sem auðvelt er að fjarlægja og því tilvalið að setja ostakökuna á fallegan kökudisk, skreyta með berjum t.d og bera fram á augabragði við hin ýmsu tilefni. Nú geta unnendur ostakaka valið á milli sex bragðtegunda, tegundirnar sem fyrir eru á markaðnum eru; Bláberja-, Mandarínu-, Súkkulaði-, Sælkerakaffi og súkkulaðiflögu- og Hindberjaostakaka, ásamt nýjunginni:. Ostaköku með karamellu. Til baka26. mars 2010
Nýjung frá MS - Dala hringur
Nýr mygluostur á markað fyrir páska ! Unnendur hvítmygluosta hafa nú nýtt afbrigði úr að velja en á markaðinn er kominn nýr hvítmygluostur frá Mjókursamsölunni, Dala hringur, osturinn er hringlaga hvítmygluostur (penicillium candidum) þar sem búið er að fjarlægja kjarna ostsins og er hann með gati í miðjunni. Lögunin á Dalahring gerir það að verkum að hann þroskast hraðar og verður fyrr tilbúinn til neyslu en aðrir mygluostar á markaði. Osturinn er bragðmildur, mjúkur og kærkomin viðbót í mygluostaflóruna. Í nafninu Dalahringur er auk lögunar ostsins skírskotað til Dalanna og Búðardals þar sem hann er framleiddur ásamt öllum mygluostum í flóru íslenskra desertosta. Osturinn er nú fáanlegur í öllum helstu matvöruverslunum landsins. Til baka24. apríl 2009
Nýjung - KEA skyrdrykkur með bláberjum
Í dag hófst sala og dreifing á nýrri bragðtegund í KEA skyrdrykkjarlínunni. KEA skyrdrykkur með bláberjum. Bláber eru ein helsta uppspretta andoxunarefna sem styrkja ónæmiskerfið og eru góð vörn gegn sjúkdómum. KEA skyrdrykkur með bláberjum er nýjasta viðbótin í skyrdrykkjar línuna sem samanstendur núna af fjórum bragðtegundum: með jarðarberjum og bönunum; með hindberjum og trönuberjum; með papaja, ferskjum og ástaraldinum; og með bláberjum. Jafnframt því að innihalda hvorki hvítan sykur né sætuefni hefur KEA skyrdrykkur meira magn ávaxta en aðrir sambærilegir drykkir en ávaxtainnihald í KEA skyrdrykk er allt að 10% samanborið við 3-5% í öðrum drykkjum. KEA skyrdrykkur inniheldur ennfremur meira magn mysupróteina en sambærilegar afurðir. KEA skyrdrykkur hefur sérstöðu að því leyti að agavesafi, sem er unninn úr mexíkóskum kaktus, er notaður í stað venjulegs hvíts sykurs eða sætuefna. KEA skyrdrykkur er framleiddur af MS á Akureyri og fæst í verslunum um land allt. Til baka24. mars 2009
MS rjómi með tappa
MS rjóminn í 1/2 L umbúðum er nú með tappa. Þessar breytingar fela í sér aukin þægindi fyrir neytendur enda verður nú auðveldara að nota rjómann og geyma eftir notkun. Jafnframt eykst geymsluþol rjómans í 12 daga. Rétt er að taka fram að þrátt fyrir þessu auknu þægindi er verðið áfram óbreytt. Tappinn hefur engin áhrif í endurvinnslu og ekki þarf að taka tappann af áður en umbúðunum er skilað inn til endurvinnslu. Til baka9. febrúar 2009
Skólaostur í sneiðum
Í síðustu viku hófst sala og dreifing á hinum sívinsæla Skólaosti í sneiðum. Ostur í sneiðum verður sífellt vinsælla meðal neytenda og er Skólaostur í sneiðum því tilvalin viðbót í sneiðalínuna. Takmarkað magn verður á 10% kynningartilboði í öllum helstu verslunum landsins. Til baka2. febrúar 2009
Skagfirskur Sveitabiti -Nýjung
Á næstu dögum hefst sala og dreifing á fyrstu ostanýjung ársins frá Mjólkursamsölunni, mildur og bragðgóður skagfirskur Sveitabiti. Sveitabitinn er einstaklega mjúkur ostur og mun mýkri en sambærilegir fastir brauðostar sem eru á markaðnum í dag. Sú nýjung er í umbúðahönnun Sveitabitans að upplýsingar um ostinn: innihald, verð, þyngd og fl. er að finna á miða undir umbúðunum (á bakhlið ostsins) Osturinn verður seldur í ca. 1,2 kg stykkjum í öllum helstu verslunum landsins. Til baka23. september 2008
Ný Kea skyrdrykkur
Ný vöruflokkur er kominn á markað frá Mjólkursamsölunni. Um er að ræða KEA skyrdrykk sem inniheldur náttúrulegan agavesafa í stað viðbætts hvíts sykurs og sætuefna. Jafnframt því að innihalda hvorki hvítan sykur né sætuefni hefur KEA skyrdrykkur meira magn ávaxta en aðrir sambærilegir drykkir en ávaxtainnihald í KEA skyrdrykk er allt að 10% samanborið við 3-5% í öðrum drykkjum. KEA skyrdrykkur inniheldur ennfremur meira magn mysupróteina en sambærilegar afurðir. KEA skyrdrykkur er í 250 ml dósum og fæst í þremur bragðtegundum: með jarðarberjum og bönunum; með hindberjum og trönuberjum; og með papaja, ferskjum og ástaraldinum. Í upphafi árs 2008 kynnti Mjólkursamsalan þau markmið að á næstu þremur árum verði framboð á sykurskertum vörum í vöruframboði stóraukið og stefnt er að því að framboð af sykurskertum vörum verði yfir þrjátíu vörunúmer að þessum tíma loknum. Með sykurskertum vörum er átt við vörur þar sem búið er að draga úr magni viðbætts sykurs eins og kostur er, án þess að nota sætuefni í staðinn. Breytt stefna MS tekur einnig til aukins ávaxtamagns í sýrðum vörum og breyttum skammtastærðum í takt við manneldissjónarmið. Nú þegar hafa komið nokkrar vörur á markað með minni sykri og án sætuefna. Þar má nefna sykurskertan jógúrtdrykk og sykurskerta Kókómjólk. Nú í sumar kom á markað Krakkaskyr en það fyrsta varan sem MS setur á markað þar sem magn ávaxta er aukið verulega ásamt því að skerða sykur. KEA skyrdrykkur hefur sérstöðu að því leyti að agavesafi, sem er unninn úr mexíkóskum kaktus, er notaður í stað venjulegs hvíts sykurs eða sætuefna. KEA skyrdrykkur er framleiddur af MS á Akureyri og fæst í verslunum um land allt. Til baka16. maí 2008
Létt G - mjólk. Aðeins 1,5% fituinnihald
Komin er á markað ný létt G-mjólk. G-mjólk hefur gengið einstaklega vel í sölu síðustu misserin og ætti þessi nýjung að vera kærkomin viðbót í flokkinn. MS Létt G-mjólk er með 1,5% fituinnihaldi eins og Léttmjólk og ætti því að höfða vel til þeirra sem hafa áhuga á fituminni vörum. Létt G-mjólkin er fáanleg bæði í 250 ml og 1 litra umbúðum. MS Létt G-mjólk er framleidd hjá MS Selfossi en sala og dreifing er í höndum MS Reykjavík. Aðrar G-mjólkurvörur frá Mjólkursamsölunni. Til baka9. maí 2008
Sýrður rjómi með hvítlauk í sprautuflösku
Við höfum hafið sölu á Sýrðum rjóma í sprautuflösku með hvítlauk. Neytendur þekkja sýrða rjómann frá MS sem er orðinn fastur liður í fæðu landsmanna og er gífurlega vinsæll með mat og í alla matargerð. Sýrður rjómi er frábær með öllum mat, í sósur, salatið og sem ídýfa með snakki og grænmeti. Bragðbættur Sýrður rjómi er ennfremur ómissandi með grillmatnum. Sýrður rjómi í sprautuflösku er í einstaklega handhægum og notendavænum umbúðum. Fyrir á markaði í sýrðum rjóma í 250 ml. sprautuflöskum er Sýrður rjómi 10% og Sýrður rjómi með graslauk og lauk. Uppskrift sem inniheldur sýrðan rjóma með graslauk og lauk Salat með sætum kartöflum, ab-mjólk og fetaosti Hollar og góðar sósur með sýrðum rjóma og hentar vel með grilluðum mat. Einnig góð sem ídýfa. Tómat- og kryddjurtasósa með sýrðum rjóma Tómat-basilíku-sósa með sýrðum rjóma Til baka10. mars 2008
Dala Feta - 20% meira magn en sama verð
Dala Feta línan er komin í nýjar umbúðir. Umbúðirnar eru notendavænni og með víðara opi svo auðveldara er að ná ostinum úr glösunum. Nýju umbúðirnar eru stærri eða 325 gr og því hefur magnið verið aukið um 20%. Rúsínan í pylsuendanum er þó að verðið mun haldast óbreytt frá því sem hefur verið. Um er að ræða fjórar tegundir af Dala Feta; Dala Feta í kryddolíu, Dala Feta með tómötum og ólífum, Dala Feta með sólþurrkuðum tómötum og Dala Feta með hvítlauk og kóríander Í hverju glasi eru 170 g af osti og 155 g af kryddaðri olíu. Dala-Feta er tilvalinn í salöt, sem snarl með ólífum, í ídýfur og í ýmsa gríska rétti og matargerð. Einnig er hann góður í ofnbakaða rétti og á pizzur svo fátt eitt sé talið upp. Í tilefni nýrra umbúða munum við keyra á lukkunúmeraleik, en lukkunúmer er prentað á bakhlið miðans og kemur númerið í ljós þegar innihald í krukkunni minnkar. Á ostur.is er síðan hægt að slá númerið inn í þar til gerðan reit og viðkomandi sér strax hvort hann hefur unnið eða ekki. Til baka10. mars 2008
Skyr.is drykkur í fernu með tappa
Nú er kominn á markað Skyr.is drykkur í 1/1 ltr. fernum með tappa. Varan er nýjung í Skyr.is drykkjar flokknum og býður upp á þægilega lausn á neyslu heima við, ísköld beint úr ísskápnum í glasið. Eins og aðrar vörur í flokknum er Skyr.is drykkurinn prótínríkur og fitusnauður. Skyr.is drykkurinn fæst í tveimur bragðtegundum: Jarðarberja Mangó og ástaraldin (án viðbætts sykurs) Til baka22. febrúar 2008
Kea skyr með hindberjum - Ný bragðtegund
Nýja bragðtegundin er með hindberjum og fæst bæði í 200 g og 500 g dósum Kea skyr fæst í fjölmörgum bragðtegundum svo að auðvelt er fyrir neytendur finna bragð við sitt hæfi. Nýja bragðtegundin fékk góðar viðtökur í bragðprófunum og mun án efa fá góðar viðtökur meðal fjölskyldna í landinu. Kea skyr er framleitt hjá MS Akureyri. Til baka11. janúar 2008
Kotasæla í nýjar umbúðir
Komnar eru á markað nýjar umbúðir af kotasælu, breytingin felst eingöngu í umbúðum en ekki innihaldi. Kotasæla hrein eða bragðbætt er góð ein sér eða sem álegg og með grænmeti eða ávöxtum, passar vel í salöt og salatsósur, í bökudeig, hverskyns brauðbakstur og eftirrétti. Til baka2. nóvember 2007
Létt - Húsavíkurjógúrt og ný umbúðastærð
Á næstu dögum kemur á markað ný bragðtegund í Létt - Húsavíkurjógúrti og ný umbúðastærð. Nýja bragðtegundin er með ferskjum og hindberjum og fæst bæði í ½ og 1 ltr. fernum. Á sama tíma kemur á markað Létt – Húsavíkurjógúrt með trefjum í 1 ltr. fernum. Húsavíkurjógúrt fæst í fjölmörgum bragðtegundum og nú geta neytendur valið um tvær mismunandi stærðir í tveimur bragðtegundum. Nýja bragðtegundin fékk góðar viðtökur í bragðprófunum og nýja umbúðastærðin mun án efa fá góðar viðtökur meðal fjölskyldna í landinu. Til baka2. október 2007
Skyr.is
Á næstu dögum kemur á markað Skyr.is Dagmál. Varan er nýjung í Skyr.is flokknum og verður án ef vel tekið af neytendum.Eins og aðrar vörur í flokknum er Skyr.is Dagmál prótínríkt og fitusnautt. Dagmál er einstaklega bragðgott og létt í sér. Skyr.is Dagmál fæst í þremur bragðtegundum: • Jarðarberja • Hindberja og vanillu (án viðbætts sykurs) • Epla og peru (án viðbætts sykurs) Til baka5. september 2007
Sykurskert Kókómjólk í flösku
Sykurskert Kókómjólk í flöskum er væntanleg á markað eftir helgi. Til að koma til móts við óskir neytenda kemur sykurskert Kókómjólk í flöskum komin á markað. Þegar Kókómjólk í flösku var markaðssett fyrr á árinu fékk hún afar góðar viðtökur á meðal neytenda og má búast við því að Sykurskert Kókómjólk í flösku fái sömuleiðis góðar viðtökur. Sykurskert Kókómjólk í flösku er helmingi léttari en venjuleg Kókómjólk. Hún er frábær kalkgjafi og rík af öðrum bætiefnum. Kókómjólk í flösku er kælivara, ekki G-vara og skal geymast í kæli við 0-4°C. Geymsluþol er 26 dagar. Til baka21. ágúst 2007
Þykkmjólk með vanillu; Ný bragðtegund
Sala er að hefjast á Þykkmjólk með vanillu. Þykkmjólk hefur lengi notið mikilla vinsælda. Vonum við að þessi nýja bragðtegund muni verða kærkomin viðbót hjá neytendum. Þykkmjólk er framleidd hjá MS Selfossi, en sala og dreifing er í höndum MS Reykjavík. Til baka25. júní 2007
Engjaþykkni með hnetum, karamellu og kornkúlum
Sala er að hefjast á nýrri tegund af Engjaþykkni! Engjaþykkni hefur notið mikilla vinsælda hjá ungum sem öldnum. Vonum við að þessi nýja tegund muni verða kærkomin viðbót hjá neytendum. Engjaþykkni er framleitt hjá MS Búðardal, en sala og dreifing er í höndum MS Reykjavík. Til baka16. apríl 2007
LGG+ jógurt með jarðarberjabragði og bláberjabragði
Á næstu dögum hefjum við sölu á LGG+ jógúrti. LGG+ jógúrt er fitusnauð og bragðgóð máltíð og er án viðbætts sykurs. LGG+ jógúrt fæst í tveimur bragðtegundum með jarðarberjabragði og bláberjabragði. Frá því að LGG+ flöskurnar komu á markað hefur verið mikil eftirspurn eftir vörunni og hefur hún notið mikilla vinsælda meðal neytenda. Með tilkomu LGG+ jógúrts vonumst við til að efla enn frekar LGG+ flokkinn og fjölga neytendum. LGG+ hefur einstaka eiginleika: • Bætir meltinguna og kemur jafnvægi á hana • Mikið mótstöðuafl • Fjölþætt varnarverkun • Stuðlar að vellíðan Til baka22. mars 2007
Léttur ab-drykkur með eplum og gulrótum
Á næstu dögum hefst sala á léttum ab-drykk í dós með epla- og gulrótarbragði. Léttur ab-drykkur í dós kom fyrst á markað í apríl 2006 og hefur frá upphafi verið vinsæll hjá neytendum. Nú bætist í hópinn ný bragðtegund með epla- og gulrótabragði. Léttur ab-drykkur með epla- og gulrótarbragði er án viðbætts sykurs og verður án efa góð viðbót við flokkinn. Líkt og aðrir drykkir í flokknum hefur hann lágt fituinnihald eða einungis 1,4%. Léttur ab drykkur inniheldur hina heilnæmu og náttúrulegu a-mjólkursýrugerla (Lactobacillus acidophilus) og b-gerla (Bifidobacterium bifidum) sem bæta meltinguna og styrkja um leið varnir líkamans. Dagleg neysla létts ab drykkjar tryggir hæfilegt magn af a og b gerlum í meltingarveginum og stuðlar að bættu heilsufari og vellíðan. Til baka9. febrúar 2007
Kókómjólk í flösku 320 ml.
Til að koma til móts við óskir neytenda kemur Kókómjólk í 320 ml flöskum á markað á næstu dögum. Kókómjólkin er einn næringarríkasti drykkur sem völ er á. Hún er frábær kalkgjafi og rík af öðrum bætiefnum. Kókómjólk er góð með mat eða bara ein sér og höfðar til allra aldurshópa. Kókómjólk í flösku er kælivara, ekki G-vara og skal geymast í kæli við 0-4°C. Geymsluþol er 26 dagar. Til baka5. janúar 2007
Létt súrmjólk með skógarberjabragði
Á næstu dögum mun Mjólkursamsalan ehf. hefja sölu á bragðbættri Létt súrmjólk með skógarberjabragði. Í dag eru fáanlegar fjórar mismunandi tegundir af bragðbættri súrmjólk sem notið hafa mikilla vinsælda og varan er því kærkomin viðbót við súrmjólkurflokkinn. Létt súrmjólk með skógarberjabragði er án viðbætts sykurs sem ætti að gera hana vinsæla fyrir þá sem kjósa léttu línuna og hún inniheldur einungis 42 hitaeiningar í 100 g. Varan hefur jafnframt þá sérstöðu að búið er að kljúfa yfir 80% af mjólkursykrinum og hentar hún því einnig fyrir flesta þá neytendur sem hafa mjólkuróþol. Við vonumst því til að þessi vara verði góð viðbót við þær tegundir sem fyrir eru á markaðinum. Bragðbætta Létt súrmjólkin er framleidd hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík, sem sér jafnframt um sölu og dreifingu á vörunni. Til bakaLeikir í gangi
Heppnar systur unnu flug ...
Nú í sumar var árlegur Sumarleikur Klóa í gangi. Öllum sexum af Kókómjólk í fernu fylgdi lukkumiði og var fjöldi vinninga í boði. Meðal vinninga...
Meira
Fleiri leikir
Meira
Fleiri leikir
Landstilboð
Tilboð á ab drykk í dós
Ágætu viðskiptavinir! Í dag hefst landstilboð á öllum bragðtegundum AB-drykkjar í dós. Reikna má með að tilboð þetta gildi út júní 2010....
Meira
Fleiri tilboð
Meira
Fleiri tilboð
Vörunýjungar
Ný bragðtegund í ostaköku...
Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar...
Meira
Fleiri nýjungar
Meira
Fleiri nýjungar




