
Leikir
Þú finnur enga tölvuleiki á þessum lista. Hér eru leikir fyrir hressa krakka til að leika saman í hóp ýmist úti eða inni. Auk þess geturðu fundið einfalda orðaleiki sem er líka hægt að leika við fullorðna, t.d. á ferð í bíl. Og það getur meira að segja verið gaman að hjálpast að við að taka til ef farið er í skemmtilegan orðaleik á meðan.
orðaleikur
innileikur
útileikur
afmælisleikur
leikur sem er hægt að leika í bíl
--------------------------------------------------------------------------------
Sardínurnar 

Allur hópurinn heldur fyrir augun og telur upphátt að 50 á meðan einn fer og felur sig. Síðan leita allir að sardínunni. Þegar einhver finnur hana segir hann ekkert við hina en treður sér í felustaðinn þegar enginn sér til. Smátt og smátt hverfa allir og felustaðurinn fyllist af sardínum. Það verður mjög skemmtilegt eftir því sem fleiri troða sér í felustaðinn og allir þurfa að passa að hvorki heyrist til þeirra né sjáist. Þegar sá síðasti finnur felustaðinn er byrjað upp á nýtt. Sá sem fann sardínuna fyrst verður næsta sardína.
--------------------------------------------------------------------------------
Ég sé, ég sé 



Einn leikmaður hugsar sér eitthvað sem sést í umhverfinu og segir „Ég sé, ég sé.“ „ Hvað sérðu?“ spyrja hinir þátttakendurnir í kór. „Ég sé hlut“, svarar hann. „Hvaða hlut?“ spyrja hinir. „Ég sé hlut sem byrjar á bókstafnum …“ og hann nefnir þann bókstaf sem viðkomandi hlutur byrjar á. Hinir giska á þá hluti sem eru sjáanlegir og byrja á rétta bókstafnum þar til einhver giskar á það rétta og sá fær að hugsa sér hlut næst. Þetta er leikur sem allir geta haft gaman af, bæði læs og ólæs börn og líka unglingar og fullorðnir.
(Þessi leikur er náskyldur leiknum Að spyrja og spá.)
--------------------------------------------------------------------------------
Að spyrja og spá 



Einn leikmaður hugsar sér eitthvað sem sést í umhverfinu og fer með þessa þulu:
„Að spyrja og spá
margt er að sjá
og hluturinn byrjar á …“ og nefnir svo bókstafinn. Hinir giska á þá hluti sem eru sjáanlegir og byrja á rétta bókstafnum þar til einhver giskar á það rétta og sá fær að hugsa sér hlut næst.
(Þessi leikur er náskyldur leiknum Ég sé, ég sé).
--------------------------------------------------------------------------------
Allir í hnút 


Leikmennirnir raða sér í þéttan hring. Allir finna sér tvo aðra leikmenn til að halda í höndina á (ekki þá sem eru næstir þeim). Síðan eiga allir að hjálpast að við að leysa hnútinn án þess að sleppa höndunum. Leikmennirnir þurfa að vera býsna liðugir því þeir geta þurft að klifra yfir suma handleggi og renna sér undir aðra!
Athugaðu líka leikinn Læknir, læknir, leystu þennan hnút!
--------------------------------------------------------------------------------
Læknir, læknir, leystu þennan hnút! 


Þessi leikur er svipaður og Allir í hnút. Leikmennirnir raða sér í þéttan hring. Allir finna sér tvo aðra leikmenn til að halda í höndina á. Nú stendur einn leikmaðurinn utan við hringinn og snýr baki í hina þar til hnúturinn hefur verið myndaður. Þetta er læknirinn. Allir í hnútnum kalla: „Læknir, læknir, leystu þennan hnút!“ Þá þarf læknirinn að leysa hnútinn án þess að handaböndin losni.
--------------------------------------------------------------------------------
Ó, ástin mín 


Allir mynda hring nema einn sem stendur í miðjunni. Sá sem er í miðjunni (sá sem er hann) spyr einn hinna: „ Ó, ástin mín, elskarðu mig í raun og veru?“ Hann má ekki snerta hina leikmennina en má hins vegar gretta sig eins mikið og honum sýnist. Þátttakandinn sem var spurður á að svara: „Ástin mín, ég elska þig, en ég get bara ekki brosað!“ Og hann má alls ekki brosa eða hlæja. Ef hann gerir það á hann að vera hann og fara í miðjuna.
--------------------------------------------------------------------------------
Steinaríki, jurtaríki, dýraríki 



“Einn hugsar sér hlut. Hinir spyrja spurninga sem er hægt að svara með „nei“ eða „já“. Fyrst er byrjað á að finna út hvaða ríki hluturinn tilheyrir, t.d. „Er hann úr steinaríkinu?“ Sá sem giskar á það rétta fær næst að vera hann.
--------------------------------------------------------------------------------
Gettu hvað ég er 



Leikurinn minnir á Steinaríki, jurtaríki, dýraríki.
Einn segist vera manneskja, staður eða hlutur. Hinir spyrja spurninga sem er hægt að svara með „nei“ eða „já“ þar til einhver getur upp á því rétta og fær þá næst að vera hann.
--------------------------------------------------------------------------------
Eitur í flösku 
Einn er eitrið. Allir hinir halda í fötin hans. Hann segir t.d.: „Eitur í tösku!“, „ Eitur í fötum!“, „Eitur í glasi!“, „Eitur í beinum!“… eða bara eitur í hverju sem honum sýnist. Allir eru kyrrir, en þegar hann segir „Eitur í flösku!“ hlaupa allir í burtu og hann eltir og reynir að klukka þá. Þeir sem hann nær standa kyrrir með bil milli fótanna og þeir sem hafa ekki enn náðst geta frelsað þá með því að skríða í gegnum klofið á þeim.
--------------------------------------------------------------------------------
Tangram 
Þú getur fundið þennan skemmtilega, kínverska leik að formum fyrir einn eða fleiri leikmenn í föndurherberginu.
--------------------------------------------------------------------------------
Leikir á veraldarvefnum
www.Leikur1.is
Leikjavefurinn
Leikir, þrautir og fleira skemmtilegt - póstkort á íslensku!
X eða O. Nærðu þremur í röð?
--------------------------------------------------------------------------------
Töfrabrögð
Vatnið sem hverfur
Það sem þarf að nota í þennan galdur er:
Vatnslögg í könnu, venjulegt, ógegnsætt drykkjarmál og svampur sem er hægt að troða ofan í það.
Þannig galdrar þú:
Það er best að æfa sig á þessu bragði áður en þú sýnir það svo þú getir fundið út hve miklu vatni er hægt að hella. Fyrst sýnirðu drykkjarmálið án þess að svampurinn sjáist. Best er að halda því nokkuð hátt uppi. Síðan hellir þú vatni í það og hvolfir því svo. Ekkert vatn hellist úr því þar sem svampurinn hefur sogið það allt í sig en áhorfendurnir verða steinhissa!
--------------------------------------------------------------------------------
Þú getur líka prófað að nota ísmola og þá kallast bragðið:
Að hraðfrysta vatn
Þá gerirðu alveg eins og í bragðinu um Vatnið sem hverfur nema að þú setur ísmola ofan á svampinn áður en þú sýnir drykkjarmálið. Passaðu bara að það heyrist ekki hringla í honum. Svo hellirðu vatninu, snýrð málinu við og ísmolinn dettur úr því!
--------------------------------------------------------------------------------
Spilagaldrar
Að finna spilið
Þessi galdur vekur oftast hrifningu hjá þeim sem ekki þekkja hann.
Þú þarft að vita hvaða spil er neðst í stokknum. Biddu svo einn áhorfanda að draga eitt spil einhvers staðar úr stokknum, skoða það og setja það svo ofan á stokkinn. Síðan skiptirðu stokknum tvisvar þannig að það virðist ómögulegt að finna spilið aftur. Að lokum leitar þú að spilinu sem var neðst í stokknum í byrjun. Spilið sem þú ert að leita að ætti þá að vera næsta spil til hægri!
Týnda spilið
Þessi snýst líka um að finna ákveðið spil og er jafnvel enn auðveldari en Að finna spilið.
Þú lætur öll spilin snúa niður nema það neðsta sem þú snýrð öfugt. Þú lætur einhvern draga eitt spil og á meðan hann skoðar það og leggur það á minnið snýrð þú stokknum við svo lítið beri á. Síðan biður þú hann að stinga spilinu inn í miðjan stokkinn. Þú snýrð þér við eitt augnablik og snýrð í skyndi við öfuga spilinu sem er núna efst í bunkanum. Síðan finnurðu spilið sem hann valdi sér því það snýr jú líka öfugt og heldur því á lofti þegar þú snýrð þér aftur fram.
--------------------------------------------------------------------------------
Brandarar
Tvær slöngur voru eitt sinn saman úti að skríða þegar önnur þeirra spurði: „Erum við eiturslöngur?“
„Það geturðu bókað,“ sagði hin, „við erum skröltormar! Af hverju spyrðu?“
„Ég beit í tunguna á mér!“·
--------------------------------------------------------------------------------
Nýgiftur maður spyr konuna sína: „Hefðirðu gifst mér ef faðir minn hefði ekki arfleitt mig að auðæfum?“
„Elskan mín,“ svaraði konan hans undurblítt, „ég hefði gifst þér sama hver hefði arfleitt þig að auðæfum.“
--------------------------------------------------------------------------------
Hefurðu tekið eftir því að allir sem fara hægar en þú eru asnar en allir sem fara hraðar en þú eru brjálæðingar?
--------------------------------------------------------------------------------
Úr beinni íþróttalýsingu:
„Hver einasti leikur er einstakur og þessi er ekkert öðruvísi!“
--------------------------------------------------------------------------------
„Ég ætla að fá fuglafræ.“
„Hvað áttu marga fugla?“
„Enga ennþá en ég ætla að sá fyrir nokkrum.“
--------------------------------------------------------------------------------
Þegar haft er í huga hvað föt unglinga eru víð er ekkert undarlegt að þeir eyði svona miklum tíma í að hanga.
--------------------------------------------------------------------------------
Væri það ekki frábært ef krakkar svæfu eins mikið þegar þeir eru ungbörn og þeir gera þegar þeir eru orðnir unglingar?
--------------------------------------------------------------------------------
Maður: „Og hvað ert þú nú gamall?“
Strákurinn: „Ég er of ungur til að vera gamall.“
--------------------------------------------------------------------------------
Nýjustu rannsóknir sýna að uppáhaldsgrænmetistegundir barna eru gulrætur, tómatar og grænt m&m.
--------------------------------------------------------------------------------
Maður fer til til geðlæknis. „Læknir, mér gengur svo illa að eignast vini. Getur þú hjálpað mér, fituklessan þín?“
--------------------------------------------------------------------------------
Strákur fer í heimsókn til ömmu sinnar og tekur vin sinn með. Á meðan strákurinn talar við ömmuna fær vinur hans sér hnetur sem eru í skál á stofuborðinu og klárar þær. Þegar þeir kveðja þakkar vinurinn fyrir hneturnar. Þá svarar amman: „Já, síðan ég týndi tönnunum mínum get ég bara sogið súkkulaðið utan af þeim.“
--------------------------------------------------------------------------------
Maður hringir á fæðingardeildina. Hann segir: „Þið verðið að hjálpa mér! Konan mín er að fara að fæða!“
„Vertu bara rólegur,“ segir ljósmóðirin. „Er þetta fyrsta barnið hennar?“
„Nei! Þetta er maðurinn hennar!“
--------------------------------------------------------------------------------
Algjör froskur!
(Þegar þú segir þennan brandara þarftu að gera munninn á þér eins breiðan og þú getur um leið og þú leikur froskinn.)
Einu sinni var breiðmynntur froskur sem fór í dýragarðinn til að komast að því hvað hin dýrin gæfu ungunum sínum að borða.
„Frú fíll, sagði breiðmynnti froskurinn, „hvað gefur þú börnunum þínum að borða?“
„Ég gef þeim fílamjólk“ svaraði fíllinn.
„Ó, mikið er það gott! (mundu að hafa munninn eins breiðan og þú getur.)
Froskurinn hélt áfram til flóðhestsins. „Frú flóðhestur, hvað gefur þú börnunum þínum að borða?“
„Ég gef þeim flóðhestamjólk.“
„Ó, mikið er það gott!“
Næst hitti hann fyrir ljónið. „Frú ljón, hvað gefur þú börnunum þínum að borða?“
„Ég gef þeim breiðmynnta froska.“
(Gerðu munninn á þér eins lítinn og mjóan og hægt er) „Ó, mikið er það gott!
--------------------------------------------------------------------------------
Þrjár óskir
Þrír menn voru úti á báti. Það gerði mikinn storm og báturinn strandaði. Þegar lægði skolaði þeim upp á ströndina. Þeir gengu um fjöruna og fundu þar flösku. Þeir tóku hana upp, drógu úr henni tappann og samstundis skaust andi upp úr henni. Andinn sagði: „Þar sem þið hafið frelsað mig úr flöskunni gef ég hverjum ykkar eina ósk.“
Fyrsti maðurinn sagði: „Ég sakna konunnar minnar og barnabarnanna. Ég vildi að ég væri kominn heim.“ Púff! Hann hvarf!
Næsti maður sagði: „Þetta er æðislegt! Ég vildi að ég væri kominn til Hawaii og lægi í sólbaði á ströndinni með gómsæta máltíð til að gæða mér á.“
Púff. Hann var líka horfinn!
Sá þriðji leit í kringum sig og sagði: „Veistu, mér finnst svo einmanalegt hérna, ég sakna félaga minna óskaplega. Ég vildi að þeir væru komnir aftur!“
Meira
Fleiri leikir
Meira
Fleiri tilboð
Meira
Fleiri nýjungar




