Föndur
Kjaftaskarnir
- Hlægilega einfaldar handbrúður sem eru síblaðrandi!

Í hverja brúðu þarf eina dós undan Hrísmjólk eða Engjaþykkni.
Teiknaðu augu og munn með merkipenna. Ef þú vilt hafa þær ennþá fínni geturðu auðvitað notað tölur eða mislitt filt eða litaðan pappír í augu, nef, munn og eyru og garn fyrir hár. Brúðurnar geta verið fólk, geimverur, kisur, hvalir, apar, pöddur eða hvaða dýr sem er.
Stærra hólfið er efri hluti andlitsins, litla hólfið er hakan. Bilið á milli er svo auðvitað munnurinn. Þú setur þumalinn í litla hólfið og hina fingurna í það efra og ef þú lánar brúðunni röddina þína getur hún bæði talað og sungið!
--------------------------------------------------------------------------------
Skip úr fernum
ab-mjólkurfernur, hálfslítra þykkmjólkur-, biomjólkur- og rjómafernur og sumar eins lítra mjólkur- og súrmjólkurfernur henta vel til að búa til báta og skip sem fljóta vel. Litlar skólamjólkur- eða kókómjólkurfernur geta verið hús ofan á skipið og lítil LGG+- flaska eða helmingur af pappahólki innan úr klósettrúllu geta verið myndarlegur reykháfur.
Ef þú vilt frekar hafa seglskip, til dæmis sjóræningjaskip, eru drykkjarrör góð möstur. Svo teiknar þú litrík segl - og ekki má gleyma sjóræningjafánanum!
Það er sennilega fljótlegast að klæða sjálft skipið með álpappír. Sjálflímandi plast er líka ágætt en ef þú vilt mála skipið þarftu að passa að nota málningu sem þolir vatn. Það má svo setja band í stefnið ef þú vilt draga skipið áfram.
--------------------------------------------------------------------------------
Drekinn langi
Efni og verkfæri:
- Fernu, ab-mjólkurfernur og aðrar slíkar eru góðar, átta stykki duga í langan dreka
- Pípuhreinsarar
- Litaður pappír eða málning og hvað sem þér dettur í hug að nota til að skreyta drekann með
- Tvær dósir undan Hrísmjólk (litlu hólfin) eða tvö hólf úr eggjabakka
- Band og LGG+-flöskulok eða pappahólkar úr klósettrúllum eða tölur eða tóm tvinnakefli eða hvaðeina sem væri sniðugt í hala á drekann!
- Lím og skæri
Kannski þarftu hjálp frá einhverjum fullorðnum því fernurnar eru stífar og það þarf að klippa í þær og gata og festa þær svo saman með pípuhreinsurunum.
Byrjaðu á að opna fernurnar alveg og þvo þær og þurrka vel. Svo eru hliðarnar klipptar úr toppstykkinu þannig að tveir flipar verði eftir. Skreyttu fernurnar eftir eigin höfði. Höfuðið er gert með því að klippa alla flipana af toppnum á einni fernunni. Síðan klippirðu V-lag inn í hana á báðum hliðum til að gera skoltinn. Þú byrjar efst í horninu, klippir langleiðina niður og svo aftur upp í hitt hornið. Sniðugt væri að gera vígtennur og klofna tungu úr pappír. Klipptu Hrísmjólkurdósirnar í tvennt á milli hólfanna og límdu litlu hólfin efst á hausinn. Þá er drekinn kominn með augu. Þú getur jafnvel límt þurrkaðar baunir eða tölur á þau sem augasteina.
Halinn er gerður með því að þræða flöskulokin eða tölurnar eða það sem þú notar í halann upp á band og festa í öftustu fernuna. Hún er síðan fest í þá næstu með því að leggja flipana utan um botninn á henni, bora tvö göt í gegn hvorum megin með skærunum (þetta skaltu fá einhvern fullorðinn til að gera fyrir þig!), þræða pípuhreinsara í gegn og festa þá að innanverðu með því að vefja þeim saman. Svona eru fernurnar festar saman koll af kolli og hausinn festur á síðast. Það má láta drekann hlykkjast áfram með því að draga hann í bandi. Annar möguleiki er að nokkrir krakkar haldi honum uppi með prikum (sem þarf þá að festa neðan í hann) og láti hann dansa svipað og gert er við kínverska dreka á hátíðum.

--------------------------------------------------------------------------------
Litabók
Smelltu á myndirnar hér að neðan til þess að sjá þær stærri áður en þú prentar þær út.
--------------------------------------------------------------------------------
Pappírsbrot
Origami
Origami er japanskt nafn á listinni að búa til hluti úr samanbrotnum pappír. Í Japan er þessi list mikils metin og stunduð af fullorðnum ekki síður en börnum. Flestir þekkja einhver dæmi um origami. Sennilega kannast þú til dæmis við bréfgogga þar sem á að velja liti og tölustafi til að komast að því hvað maður er. Margir krakkar þekkja líka pappírsbáta. Hlutirnir sem hér er kennt að búa til byggjast á nákvæmlega sömu lögmálum.
Í origami er algengast að nota blað sem er ferningur en það köllum við ferhyrning sem hefur allar hliðar jafnlangar. Ef þú ert með venjulegt blað (A4) geturðu brotið það eins og sést á myndinni og klippt af flipann sem stendur niður fyrir – og þá er kominn ferningur.
Það er mjög sniðugt að endurvinna pappír með því að gera origami og skutlur úr blöðum sem er búið að prenta eða teikna á. Þannig leggurðu eitthvað af mörkum - þú sparar peninga og verðmætt hráefni og auðlindir.
Svanur
- sígilt origami fyrir byrjendur. Svanurinn er einfalt og fallegt borðskraut.
Til að brjóta svaninn þarftu pappírsferning. Gerðu eins og sýnt er á skýringarmyndunum. Brotalínan sýnir næsta brot, örvarnar sýna hreyfinguna - í hvaða átt á að brjóta.
1. Láttu blaðið snúa eins og hér sést.
2. Brjóttu hliðarhornin inn að miðlínu.
3. Núna lítur blaðið svona út.
4. Snúðu því svo við og brjóttu hliðarhornin aftur inn að miðju.
5. Brjóttu nú blaðið í tvennt um það bil í miðju.
6. Næst brýtur þú höfuðið niður.
Stærð höfuðsins og hálsins ræður miklu um útlit svansins. Langur háls er fallegur en ef hann er of langur missir svanurinn jafnvægið.
7. Brjóttu svaninn eftir endilöngu.
8. Togaðu svanahálsinn upp þar til þér finnst hann vera mátulega sveigður aftur og búðu til brotið neðst á honum. Það sama gerir þú við höfuðið. Nú er svanurinn tilbúinn!

--------------------------------------------------------------------------------
Samúræ-hjálmur
- Samúræjar voru japanskir riddarar og þeir notuðu mjög sérstaka hjálma.
Best er að nota blað sem er ferningur, 55-65 cm á hvorn veg. Það er mjög stórt blað en þú getur til dæmis límt saman tvær opnur úr dagblaði og klippt þær svo til í rétta stærð. Það er best að brjóta fyrst styttri hliðina í þríhyrning og klippa burt flipann sem stendur niður fyrir.
Brjóttu svo bæði þröngu hornin niður í stóra (rétta) hornið.
Brjóttu svo hvorn þríhyrning um sig í miðjunni þannig að þeir verði eins og helmingurinn af því sem þeir voru.
Brjóttu þá niður til hálfs aftur.
Brjóttu efra blaðið í neðra horninu upp eins og sést á myndinni.
Brjóttu svo neðsta hlutann aftur upp þannig að það myndist lítil brún.
Snúðu hjálminum við og leggðu neðsta hornið alveg upp og brjóttu.
Opnaðu hjálminn og settu hann á höfuðið því nú er hann tilbúinn!
Ef þú vilt getur þú litað hann, til dæmis með vaxlitum.

--------------------------------------------------------------------------------
Dúfa
- Nokkrar litlar friðardúfur úr venjulegum hvítum pappír hengdar upp saman mynda fallegan óróa.
1. Byrjaðu með ferning og brjóttu hann í tvennt.
2. Brjóttu tvö horn inn að miðlínu.
3. Brjóttu blaðið í tvennt. Þríhyrningarnir eiga að vera innan í.
4. Brjóttu höfuðið niður eins og á myndinni.
5. Brjóttu það svo í hina áttina.
6. Settu höfuðið aftur upp og brjóttu það niður í miðjunni (innhverft) með því að styðjast við brotalínurnar sem hafa myndast. Teiknaðu þríhyrning eins og á skýringarmyndinni og klipptu burtu. Nú hefurðu búið til vængina og stélið.
7. Brjóttu vængina upp báðum megin.
Nú er hún tilbúin til upphengingar. Svona er einfalt að búa til dúfu.

--------------------------------------------------------------------------------
Skutlur
Pappírsskutlur geta verið ákaflega mismunandi. Góð flughæfni þeirra ræðst af margvíslegum eiginleikum sem eiga sér oft fyrirmyndir í raunverulegum flugvélum. Þessir eiginleikar stjórna ekki bara því hvort þær fljúga - heldur hvernig. Sumar fljúga hratt og örugglega - og þá er vissara að passa sig að enginn fái þær í augað! Aðrar svífa hægt og tígulega langar vegalengdir. Hér á eftir fara leiðbeiningar með skýringarmyndum fyrir skutlubrot.
Skutla 1
Lítil, einföld og pottþétt!
Efni og verkfæri:
- 1 blað A4
- skæri
1. Brjóttu blaðið í tvennt eftir endilöngu.
2. Brjóttu efri hornin tvö inn að miðju.
3. Brjóttu þríhyrninginn sem myndaðist niður.
4. Klipptu lítinn ferning úr hornunum. Skoðaðu skýringarmyndina.
5. Brjóttu efri hornin aftur niður.
6. Brjóttu litla þríhyrninginn sem gægist niður fyrir miðjuna upp.
7. Brjóttu skutluna í miðju þannig að litli þríhyrningurinn snúi út.
8. Brjóttu vængina niður eins og sýnt er á myndinni og skutlan þín er tilbúin.

--------------------------------------------------------------------------------
Skutla 2
Hún helst lengi á lofti og svífur fremur en að fljúga. Þetta brot er eins konar afbrigði af skutlu 1.
Efni:
- 1 blað A4
1. Brjóttu blaðið í tvennt eftir endilöngu.
2. Brjóttu efri hornin tvö inn að miðju.
3. Brjóttu þríhyrninginn sem myndaðist niður.
4. Brjóttu efri hornin niður þannig að þau mætist um það bil einum sentímetra ofan við horn stóra þríhyrningsins.
5. Brjóttu litla hornið (horn stóra þríhyrningsins sem gægist nú niður undan) upp þannig að hornin haldist á sínum stað.
6. Brjóttu saman í miðju þannig að brotin séu á skutlunni utanverðri.
7. Brjóttu vængina niður þannig að vængjabrúnirnar mæti kjölnum og nef skutlunnar verði oddhvasst.

--------------------------------------------------------------------------------
Tangram
Tangram er kínverskur leikur, nokkurs konar púsluspil. Það er búið til úr ferningi sem er skipt niður í sjö hluta. Þeim er síðan púslað saman á ótal vegu til að gera alls kyns myndir - og þá reynir á hugvit og ímyndunarafl! Það er hægt að keppa í því hverjum tekst best að leysa mismunandi verkefni, til dæmis með því að búa til myndir af einhverju fyrir fram ákveðnu. Það kemur flestum á óvart sem prófa hvað þessir sjö bitar sem eru allir regluleg form, fimm þríhyrnd og tvö ferhyrnd, geta myndað marga og ólíka hluti. Venjulega reglan er sú að það verður að nota öll sjö formin við að leysa hvert verkefni.
Það er auðvelt að búa til tangram. Karton sem er 15 x 15 cm á hvorn veg er heppileg stærð. Farðu eftir teikningunni hér fyrir neðan og prófaðu að spreyta þig!

--------------------------------------------------------------------------------
Frábært föndur á vefnum
Meira
Fleiri leikir
Meira
Fleiri tilboð
Meira
Fleiri nýjungar





