Á sölu- og markaðssviði Mjólkursamsölunnar er starfandi sérstakur verslunarráðgjafi. Hlutverk verslunarráðgjafa veita ráðgjöf vegna röðunar vara í kælana og hvernig best sé að panta í hann. Einnig ráðgjöf við að meðhöndla vörurnar og að halda endursendingum í lágmarki og draga úr rýrnun þeirra.
Verslunarráðgjafi heldur einnig utan um teikningar sem unnar eru í s.k. Spaceman forriti. Með þessu forriti má greina vöruval út frá sölusögu, framlegð, rýrnun og endursendingu.
Rýmisráðstöfunarforritið Spaceman hefur nú verið í notkun í rúm 10 ár hjá Mjólkursamsölunni. Sífellt fleiri fyrirtæki eru farin að nota þetta forrit til skipulagningar á uppsetningu á sínum verslunum. Keðjustjórar, innkaupastjórar, starfsmenn mjólkurkæla, sem og verslunarstjórar, hafa tekið þessari þjónustu mjög vel. Verslunarráðgjafi ferðast einnig um landið og reynir að mæta þörfum þeirra verslana sem þar eru.
Verslunarráðgjöf á verslanasviði söludeildar annast rýmisráðstöfun og ráðgjöfina annast Bjarni V. Pálmason (bjarnip@ms.is)

Spaceman professional
Forritið sem er notað heitir Spaceman professional og vinnur á sér SQL gagnagrunni. Það eru til teikningar af öllum helstu verslunum á landinu. Þær eru vistaðar og farið er yfir þær mjög reglulega til að viðhalda nýjungum og vörum sem eru hættar, einnig að þær fylgi sölusögu viðkomandi verslunnar, sem er mjög breytileg eftir árstíðum og breytingum á markaði. Teikningin er fyrst og fremst vinnuplagg fyrir starfsmenn mjólkurkæla og hafa þeir teikninguna uppi í mjólkurkælunum, til að fara eftir. Með góðu samstarfi við sölumenn okkar hér í MS er auðvelt að halda utan um uppfærslu á teikningum og þörfina á uppfærslum.
Þegar teikning er gerð er vörunum raðað upp með markaðsfræðilegri hugsun. Með spacemann er hægt að hafa áhrif á kauphegðun viðskiptavina. Auka sölu og framlegð og koma í veg fyrir háa rýrnun og endursendingar.
Spacemanninn kemur í veg fyrir auðar hillur og er haft í huga að kælirinn haldi sölu. Þetta kemur sér líka vel fyrir starfsmann mjólkurkælisins þar sem hann þarf ekki að fylla látlaust á vöru sem selst hratt á meðan vara sem fer of hægt er að taka of mikið pláss.
Meira
Fleiri tilboð
Meira
Fleiri leikir
Meira
Fleiri nýjungar





