Lágmarkspöntun og afgreiðslugjald
Lágmarkspöntun hjá Mjólkursamsölunni er kr. 10.000,- án vsk.
Nái pöntun ekki lágmarki fellur til afgreiðslugjald að upphæð kr. 1.500,-
EDI
Stór hluti pantana Mjólkursamsölunnar er móttekin með rafrænum hætti eða í gegnum svokallað EDI ( Electronic Data Interchange ) kerfi. Þá er pöntun send af viðskiptamanni og móttekin og staðfest rafrænt af sölufulltrúa.
Staðfesting um að pöntunin er móttekin fer sjálfkrafa til viðskiptamannsins.
Endursendingar
Mjólkursamsalan hefur gefið út sérstakar reglur um endursendingar á vörum fyrirtækisins frá viðskiptamönnum í þeim tilgangi að auðvelda starfsmönnum verslana og Mjólkursamsölunnar vinnu við meðhöndlun þeirra. Verklagsregla skilgreinir hverjir hafa leyfi til að heimila endursendingar og endurgreiðslur á vörum fyrirtækisins. Ennfremur þær ástæður sem liggja til grundvallar því að Mjólkursamsalan samþykki endursendingu og endurgreiðslu.
Viðurkenndar ástæður endursendinga :
- Vara skemmist í flutningi
- Innköllun vegna gallaðrar framleiðslu
- Rangt skrifað á nótu eða röng tiltekt
- Of stuttur sölufrestur
Mjólkursamsalan tryggir að allar vörur hafi a.m.k. 60% eftir af sölufresti þegar varan berst versluninni.
Dreifing
Mjólkursamsalan leggur metnað sinn í að veita sem besta þjónustu.
Í Reykjavík er vaskur hópur starfsmanna sem sér um að taka til vörur sem fara til: Selfoss, Suðurnesja, stór Reykjavíkursvæðisins, Vesturlands, Vestfjarða, Stranda, Húnavatnsýslna, Skagafjarðar og Akureyrar. MS Reykjavík hefur um 24 bifreiðar sem sjá um að dreifa vörunni á stór Reykjavíkursvæðið, Suðurnes og til Borgarfjarðar. Auk þess er MS í viðskiptum við aðra flutningsaðila.
Meira
Fleiri tilboð
Meira
Fleiri leikir
Meira
Fleiri nýjungar





