Mjólkur- og ostaskóli Mjólkursamsölunnar er ætlaður til fræðslu handa verslunarstjórum og starfsmanna mjólkur- og ostakæla.
Skólinn fer yfir alla þá mikilvægu þætti sem snerta meðhöndlun osta- og mjólkurvara. Námskeiðin eru stutt og hnitmiðað.
Á námskeiðunum er m.a. farið er yfir Spaceman teikningar, pantanir, framstillingar, meðhöndlun og geymslu ferskvöru, vöruþekkingu, endursendingar, rýrnun og hvað er hægt að gera til að halda þeim í lágmarki. Leitað er til þeirra sérfræðinga Mjólkursamsölunnar til að svara öllum þeim spurningum og leysa þau vandamál sem verslanirnar eiga við að glíma.
Þessi námskeið eru haldin reglulega til að viðhalda þekkingu í mjólkur og ostakælum. Það er okkur í hag og okkar viðskiptavina að hafa vel upplýst starfsfólk í mjólkur- og ostakælum, starfsfólk sem býr yfir yfirburða þekkingu á því sem það er að gera.
Við höfum fengið mjög góða viðtökur við þessum námskeiðum og starfsfólkið hefur mikið talað um hvað það hefur fengið mikið út úr þeim.
Umsjónarmaður með Mjólkur- og ostaskóla Mjólkursamsölunnar er Heiða B. Ásbjörnsdóttir.
Meira
Fleiri tilboð
Meira
Fleiri leikir
Meira
Fleiri nýjungar





