Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir > Smáréttir
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Smáréttir > Smábrauð með sýrðum rjóma

Smábrauð með sýrðum rjóma

Smábrauðin eru mjög góð með alls konar áleggi. Notið sýrðan rjóma með Dijon sinnepi og svörtum pipar með eða ókryddaðan sýrðan rjóma 10%, 18% eða 36%, hann er ómissandi.

Matreiðsluleiðbeiningar

Blandið saman mjólk og vatni þannig að það verði u.þ.b. 37°C heitt. Blandið gerinu út í. Linið smjörið. Hrærið smjöri, sykri, salti og súrmjólk saman við mjólkurblönduna ásamt heilhveiti og u.þ.b. helmingnum af hveitinu. Sláið deigið vel saman. Stráið hveiti yfir deigið í skálinni og látið það lyfta sér í 1-1 ½ klst. Hnoðið deigið, bætið hveiti í eftir þörfum. Mótið ílöng brauð, 16-18 stykki og raðið á plötu. Látið lyfta sér í 20-30 mín. Penslið með eggjablöndu og bakið í miðjum ofni við 200°C í u.þ.b. 15 mín.

Hráefni fyrir Uppfæra hráefnalista Setja í mína uppskriftabók
Skoða mína uppskriftabók/innkaupalista
 

smábrauð

2 dl mjólk
2 dl vatn (heitt)
1 dl súrmjólk
4 tsk þurrger
15 g sykur
2 tsk gróft salt
50 g smjör
300 g heilhveiti
350 g hveiti

Leitarvél
Leitaðu að þinni eftirlætis uppskrift!

 
Senda inn uppskrift
Sendu inn uppskrift inniheldur
vöru(r) frá MS og þú gætir unnið glæsilega ostakörfu. Smelltu hér
Mitt svæði
Gómsætar uppskriftir til þín
Gakktu í Netklúbbinn og við sendum þér nýjar uppskriftir reglulega. Þú getur búið til þína eigin uppskriftabók. Skráðu þig núna!

Ef þú ert skráður/skráð í netklúbb Gott í matinn er ekki nauðsynlegt að skrá þig aftur.

Netfang:
Lykilorð:
Nýskráning Gleymt lykilorð