Skólabörn í heimsókn
Vikuna 23.-26. Janúar stóðu yfir skólaheimsóknir og heimsóttu mikill fjölda barna í 8, 9 eða 10 ára bekk Mjólkursamsöluna. Með hverjum bekk komu 1-2 fylgdarmenn.
Farið var með börnin um Mjólkursamsöluna og þeim sýnt ferli framleiðslunnar. Margt annað var gert börnunum til fróðleiks og skemmtunar. Með hverjum hóp fór einn leiðsögumaður sem sýndi börnunum mynjasafnið og svo pökkunarsalinn, svo dæmi sé tekið.Þá mætti Lalli töframaður á staðinn og var með töfrabrögð sem voru frábær.Börnin fengu einnig að heimsækja ísgerðina og fóru þaðan í fundarsalinn og fengu mjólk, kleinu, eplabita og ís. Í fundarsalnum var búið að setja upp getraun og áttu börnin að geta hversu margar Mjólkurfernur voru í stæðunni sem búið var að raða upp, við stæðuna upphófust miklar pælingar og spekulasjónir.

Veitt verða verðlaun fyrir 1. 2. og 3 sætið og verður farið var með verðlaunin í skólann til barnanna á næstunni. Þá fengu börnin kveðjugjöf sem í þess sinn var Klóa eða Gotta sundtaska. Börnin skemmtu sér vel í heimsókninni til okkar í Mjólkursamsöluna og vildu öll fá að koma aftur. Þá töluðu kennarar um hversu vel skipulaðar þessar heimsóknir eru og ánægjulegar.
Myndirnar úr skólaheimsóknunum má sjá hér
Meira
Fleiri leikir
Meira
Fleiri tilboð
Meira
Fleiri nýjungar






