Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Skólaheimsóknir 2010

Skólabörn í heimsókn

Vikuna 25.-28. Janúar stóðu yfir skólaheimsóknir og heimsóttu mikill fjölda barna í 8, 9 eða 10 ára bekk Mjólkursamsöluna. Með hverjum bekk komu 1-2 fylgdarmenn.
Farið var með börnin um Mjólkursamsöluna og þeim sýnt ferli framleiðslunnar. Margt annað var gert börnunum til fróðleiks og skemmtunar. Með hverjum hóp fór einn leiðsögumaður sem sýndi börnunum mynjasafnið og svo pökkunarsalinn, svo dæmi sé tekið.Þá mætti Bjarni töframaður á staðinn og var með töfrabrögð sem voru frábær.Börnin fengu einnig að heimsækja ísgerðina og fóru þaðan í fundarsalinn og fengu mjólk, kleinu, eplabita og ís. Í fundarsalnum var búið að setja upp getraun og áttu börnin að geta hversu margar kókómjólkurfernur voru í stæðunni sem búið var að raða upp, við stæðuna upphófust miklar pælingar og spekulasjónir.

 

  
       
        


Veitt verða verðlaun fyrir 1. 2. og 3 sætið og verður farið var með verðlaunin í skólann til barnanna á næstunni. Þá fengu börnin kveðjugjöf sem í þess sinn var Klóa eða Gotta sundtaska. Börnin skemmtu sér vel í heimsókninni til okkar í Mjólkursamsöluna og vildu öll fá að koma aftur. Þá töluðu kennarar um hversu vel skipulaðar þessar heimsóknir eru og ánægjulegar.


Myndir úr skólaheimsókninni má sjá hér

Leikir í gangi
Heppnar systur unnu flug ...
Nú í sumar var árlegur Sumarleikur Klóa í gangi. Öllum sexum af Kókómjólk í fernu fylgdi lukkumiði og var fjöldi vinninga í boði. Meðal vinninga...

Meira
Fleiri leikir
Landstilboð
Tilboð - Bragðbætt súrmjó...
Í vikunni hófst landstilboð á öllum tegundum bragðbættrar súrmjólkur frá MS. Reikna má með að tilboð þetta gildi út marsmánuð 2010. Allar fernur...

Meira
Fleiri tilboð
Vörunýjungar
Nýjung - KEA skyrdrykkur ...
Í dag hófst sala og dreifing á nýrri bragðtegund í KEA skyrdrykkjarlínunni. KEA skyrdrykkur með bláberjum. Bláber eru ein helsta uppspretta...

Meira
Fleiri nýjungar