Vissir þú að?
Visir þú að viðbættur sykur er sá sykur sem bætt er í vöruna í framleiðslu. Ekki verið að tala um náttúrulegan sykur í matvælum. Náttúrulegur sykur er til staðar í sumum matvælum eins og mjólkursykur í mjólkurvörum og ávaxtasykur og venjulegur sykur í ávöxtum og hreinum söfum.
Það er ekki bara hvítur sykur sem telst til viðbætts sykurs, heldur er einnig notast við hunang, hrásykur, púðursykur, ávaxtasykur (frúktósa) og hunang, svo eitthvað sé nefnt.
Vissir þú að ostur og mjólk eru eitt af auðugustu kalkgjöfum sem völ er á frá náttúrunnar hendi
Vissir þú að mjólkurvörur eru ein mikilvægasta uppspretta próteina úr fæðunni og innihalda fjölda næringarefna
Vissir þú að A-vítamín sem stundum er kallað vítamín augnanna finnst í ríkulegu magni í osti og smjöri
Vissir þú að kalk sem þú færð í ríkum mæli úr osti og mjólk á mestan þátt í myndun og viðhaldi tanna og beina
Vissir þú að aspartam er samsett úr tveimur amínósýrum, en amínósýrur eru grunneiningar próteina? Almennt hafa niðurstöður viðurkenndra vísindarannsókna ekki sýnt fram á skaðsemi neyslu aspartams í matvælum og er það viðurkennt og leyft til notkunar sem aukefni af heilbrigðisyfirvöldum um allan heim.
Vissir þú að mjólkurvörur eru ein mikilvægasta uppspretta próteina úr fæðunni og innihalda fjölda næringarefna? Til að mynda gefur ein skyrdós fjórðung til þriðjung af daglegri þörf margra vítamína og steinefna. Þær eru mikilvægur kalkgjafi og góð uppspretta sinks, fosfórs, joðs, A-vítamíns og fjölmargra B-vítamína, svo eitthvað sé nefnt.
Vissir þú að í sýrðum mjólkurafurðum er um helmingur náttúrulegur mjólkursykur en viðbættur sykur er fyrst og fremst settur í vöruna til að vinna á móti súrnum svo þær verði lystugri? Helsti næringarfræðilegi ókostur sykurs er að hann gefur orku en ekki næringarefni. Því má segja að þegar sykri er bætt í matvæli rýrast þau að næringarinnihaldi og mataræði sem ríkt er af sykurríkum afurðum á borð við sætindi og gosdrykki er því næringarsnauðara en ella. Hafa verður í huga að mjólk er næringarríkasta matvæli sem völ er á. Við að bæta sykri í mjólkurvöru rýrist hún aðeins að næringarinnihaldi en hún er engu að síður áfram afar holl og næringarrík.
Vissir þú að samkvæmt niðurstöðum nýlegra neyslukannana koma 6% af heildarsykurneyslu frá mjólkurvörum, en 94% sykurneyslunnar frá öðrum matvælum? (Heimild: Landskönnun á mataræði Íslendinga 2002 Manneldisráð 2003).
Vissir þú að samkvæmt opinberum tölum notar íslenskur mjólkuriðnaður um 3% af þeim sykri sem fluttur er inn til landsins árlega? (Heimild: Hagstofa Íslands).
Vissir þú að yfir 80% af magni mjólkurvara sem Mjólkursamsalan selur eru hreinar vörur eða án viðbætts sykurs? (Hér er átt við neyslumjólk, sýrðar vörur, G-vörur).
Vissir þú að í Manneldismarkmiðum fyrir Íslendinga er ráðlagt að fólk neyti 2-3 skammta af mjólkurvörum daglega? (Heimild: Lýðheilsustöð ? áður Manneldisráð).
Vissir þú að bein halda áfram að vaxa til u.þ.b. 30 ára aldurs?
Vissir þú að álag á beinin, t.d. við hlaup, hopp og aðra áreynslu, er það sem styrkir þau mest?
Heilsugreinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...
Meira
Fleiri greinar
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...
Meira
Fleiri greinar
Skólahreysti
Mjólkursamsalan áfram aða...
Magnús Ólafsson forstjóri Mjólkursamsölunnar og Andrés Guðmundsson stofnandi Icefitness undirrituðu nýlega styrktarsamning vegna Skólahreysti 2009...
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til. Í pokanum eru 370 gr af...
Meira
Fleiri nýjungar
Meira
Fleiri nýjungar





