Ekki missa af úrslitakeppninni í Skólahreysti
Æsispennandi keppni í Skólahreysti lýkur næstkomandi fimmtudag með úrslitakeppni í Laugardalshöllinni.
Meiri þátttaka var í keppninni en nokkru sinni fyrr og alls tóku 106 skólar þátt. Algengt var að þátttakendur bættu sig mikið á milli ára og verður spennandi að sjá hvernig frammistaðan verður á úrslitakvöldinu.
Skólarnir tíu sem komnir eru í úrslit eru eftirtaldir:
Foldaskóli, Hagaskóli, Lindaskóli, Heiðarskóli, Hvolsskóli, Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar, Grunnskóli Siglufjarðar, Giljaskóli, Grundaskóli og Grunnskóli Ísafjarðar.
Útsendingin byrjar kl. 20:00 og er til 22:00. Þeir sem tök hafa á eru auðvitað velkomnir í Höllina að upplifa mótið og stemninguna. Þátturinn verður sýndur í beinni útsendingu á Skjá einum.
Jónsi og Ívar Guðmunds verða á sínum stöðum. Sigurvegari Samfés kemur og syngur sigurlagið.
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri nýjungar





