Mjólkursamsalan er aðalstyrktaraðili Skólahreystis
Upphaf Skólahreysti var 2005 og voru þá sex skólar sem kepptu í Íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ. Ári seinna voru 44 skólar mættir til leiks af öllu höfuðborgarsvæðinu. Sökum mikillar eftirspurnar um þátttöku skóla utan af landi var ákveðið að bjóða níunda og tíunda bekk í 130 grunnskólum að taka þátt. Þátttakan var vonum framar og það voru 96 skólar sem kepptu í 10 undankeppnum. Í ár er Skólahreysti einnig á landsvísu.
Stjórnendur skólanna og íþróttakennarar hafa tekið Skólahreysti mjög vel. Margir skólar hafa forkeppnir innan skólanna til að velja nemendur í liðin. Þá hafa nokkrir skólar ákveðið að taka Skólahreysti sem valkost inn í námsskrá. Mikill áhugi er meðal nemenda og gaf þetta íþróttakennurum skólanna möguleika á að leggja áherslu á grunnþjálfun nemenda og vinna meira með líkamlegar æfingar sem undirbúning fyrir þessa keppni. Mikil áhersla var lögð á að gera keppendur sýnilega og að þeir væru í aðalhlutverki.
Okkar markmið með þessari keppni er að efla hreyfingu barna. Gera gömlu góðu æfingarnar eftirsóknarverðar á ný. Við ákváðum í upphafi að gera allar keppnirnar glæsilegar. Starfsfólk, tækjakostur og aðbúnaður er mjög vandaður og engu er til sparað. Það gerum við svo krakkarnir vilji taka þátt og finnist þetta spennandi og skemmtilegur valkostur.
Kíktu inn á vefinn Skólahreysti.
Hér getur þú skoðað kynningarmyndband.


Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri nýjungar





