Skólahreysti, úrslit og umfjöllun 27. mars 2008
Níundi riðill í Skólahreysti fór fram í íþróttahúsinu á Akranesi 27. mars síðastliðinn. Alls öttu níu grunnskólar kappi í þessari æsispennandi keppni.
Tvö lið slógust um efstu sætin alla keppnina, Grundaskóli, sem sigraði þennan riðil í fyrra, og svo Heiðarskóli. Að lokum fór svo að Grundaskóli sigraði keppnina en Heiðarskóli varð að láta sér lynda annað sætið. Í þriðja sæti varð svo Varmalandsskóli eftir harða keppni við Grunnskóla Stykkishólms.
Með sigrinum hefur Grundaskóli tryggt sér þátttökurétt í úrslitum Skólahreystis sem fer fram í Laugardalshöllinni 17. apríl næstkomandi.
Elva Rut Árnadóttir og Ólafur Jósef Ólafsson í Heiðarskóla sigruðu hraðaþrautina en þau fóru brautina á 2:38 mínútum. Í hreystigreip sigraði Sara Eir Árnadóttir og flestar dýfur tók Eiður Rafn Hjaltason, bæði úr Heiðarskóla. Flestar upphífingar tók Arnór Freyr Símonarson úr Grundaskóla og Anna Kristín Árnadóttir úr Varmlandsskóla tók flestar armbeygjur.
Keppnin var gríðarlega spennandi og voru áhorfendabekkir troðfullir. Keppni milli skólanna var hörð og ljóst er að stemning fyrir keppninni er gríðarlega mikil, bæði meðal keppenda og áhorfenda.
Sýnt verður frá Skólahreysti á Skjá einum 1. apríl kl. 20:10. Síðasta undankeppnin í Skólahreysti verður á Ísafirði 3. apríl.
Frekari upplýsingar um Skólahreysti má skoða á vefsíðunni www.skolahreysti.is
Til bakaÍ ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri nýjungar





