Skólahreysti 14. febrúar
Þriðja keppnin í Skólahreysti fór fram í Íþróttahúsinu Sólvöllum á Selfossi í gær, 14. febrúar. Alls öttu níu grunnskólar á Suðurlandi kappi í þessari æsispennandi keppni.
Fjórir skólar leiddu keppnina sem var mjög jöfn og spennandi. Hvolsskóli sigraði að lokum en í öðru sæti varð Vallaskóli á Selfossi og í því þriðja lenti Grunnskóli Vestmannaeyja. Með sigrinum hefur Hvolsskóli tryggt sér þátttökurétt í úrslitum Skólahreystis sem fer fam í Laugardalshöllinni 17. apríl næstkomandi.
Hraðaþrautina sigraði Hvolsskóli sem fór brautina á 2:34 mínútum og telst það góður árangur. Bryndís Sigríksdóttir í Hvolsskóla sigraði bæði í hreystigreip og armbeygjukeppninni. Í hreystigreipi hékk Bryndís í 4:50 mínútur sem er annar besti árangur frá upphafi. Gaman verður að sjá hvort henni tekst að slá Skólahreystismetið, 5:29 mínútur, í úrslitunum.
Af öðrum úrslitum má nefna að Reynir Óskarsson í Grunnskólanum Hellu sigraði í upphífingum og flestar dýfur tók Brynjólfur Ingvarsson í Vallaskóla.
Keppnin var gríðarlega spennandi og voru áhorfendabekkir troðfullir. Gríðarleg keppni var milli skólanna og ljóst er að mikil stemning er fyrir keppninni meðal nemenda skólanna.
Sýnt verður frá Skólahreysti á Skjá einum 19. febrúar kl. 20:00. Næsta keppni í Skólahreysti verður haldin í Íþróttahúsinu Tjarnarbraut á Egilsstöðum 21. febrúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar um Skólahreysti má nálgast á vefsíðunni www.skolahreysti.is.
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri nýjungar





