Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Skólahreysti - Skólahreysti 21. febrúar
21. febrúar 2008

Skólahreysti 21. febrúar

Vinningslið frá Grunnskóla FáskrúðsfjarðarSjötti riðill í Skólahreysti fór fram í Íþróttahúsinu Tjarnarbraut á Selfossi  21. febrúar síðastliðinn. Alls öttu þrettán grunnskólar á Austurlandi kappi í þessari æsispennandi keppni og hafa þrír skólar bæst í hópinn frá því í fyrra.  
  
Tvö lið slógust um efstu sætin alla keppnina, sigurvegarinn frá því í fyrra, Grunnskóli Hornafjarðar og Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar sem var í öðru sæti í fyrra. Að lokum fór svo að Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar sigraði keppnina en Grunnskóli Hornafjarðar varð að láta sér lynda annað sætið. Í þriðja sæti varð svo Hallormsstaðaskóli. Með sigrinum hefur Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar tryggt sér þátttökurétt í úrslitum Skólahreystis sem fer fram í Laugardalshöllinni 17. apríl næstkomandi.

 Hraðaþrautina sigraði Vopnafjarðarskóli sem fór brautina á 3:02 mínútum. Í upphífingum sigraði Ólafur Albert Sævarsson og flestar armbeygjur tók Anna Mekkín Reynisdóttir, bæði úr Grunnskóla Hornafjarðar. Flestar dýfur tók Hilmar Bjartþórsson úr Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Bryndís Hjálmarsdóttir úr sama skóla sigraði hreystigreipið.   

Keppnin var gríðarlega spennandi og voru áhorfendabekkir troðfullir. Að sögn forvarsmanns íþróttahússins hefur aldrei jafnmikið af áhorfendum komið í húsið.  Keppni milli skólanna var hörð og ljóst er að mikil stemning er fyrir keppninni meðal nemenda skólanna.
 
Sýnt verður frá Skólahreysti á Skjá einum 26. febrúar kl. 20:00. Næsta keppni í Skólahreysti verður haldin í Íþróttahöllinni Skólastíg á Akureyri 28. febrúar næstkomandi.


Til baka
Heilsugreinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...

Meira
Fleiri greinar
Skólahreysti
Mjólkursamsalan áfram aða...
Magnús Ólafsson forstjóri Mjólkursamsölunnar og Andrés Guðmundsson stofnandi Icefitness undirrituðu nýlega styrktarsamning vegna Skólahreysti 2009...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar