Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
LGG

Dagleg neysla LGG+ eflir mótstöðuafl líkamans gegn margvíslegum sýkingum og stuðlar að vellíðan og hreysti

LGG-gerillinn

LGG-gerillinn (Lactobacillus rhamnosus GG) var einangraður snemma á 9. áratug síðustu aldar af tveimur bandarískum háskólaprófessorum, Sherwood Gorbach og Barry Goldin. Finnski mjólkurframleiðandinn Valio fékk einkaleyfi á notkun gerilsins í matvælaiðnaði og fyrstu vörurnar sem innihéldu gerilinn komu á markað í Finnlandi árið 1990, undir vörumerkinu Gefilus. Árið 1998 gerði Mjólkursamsalan samning við Valio um að nota gerilinn, og markaðssetti sama ár LGG+ í litlum 65 ml flöskum. MS var eitt af allra fyrstu fyrirtækjum í heiminum til að kynna til sögunnar smáskammtaflöskurnar fyrir markfæði eins og LGG+, en nú hefur þessi gerð umbúða rutt sér til rúms víðar og má segja að smáskammtaumbúðir séu nú í flestum löndum Evrópu notaðar fyrir markfæðisvörur á borð við LGG og fleiri vörur með heilsustyrkjandi áhrif.

LGGMikill fjöldi rannsókna á virkni LGG-gerilsins
Síðan LGG-gerillinn fannst hafa fjölmargar vísindalegar rannsóknir hafa verið gerðar á virkni hans. Þessar vísindarannsóknir má m.a. finna á vef MEDLINE, http://www.pubmed.com/, sem er gagnagrunnur yfir greinar í ritrýndum tímaritum í lífvísindum á vegum National Library of Medicine og National Institutes of Health í Bandaríkjunum. Í þessum gagnagrunni má finna yfir 300 greinar um "Lactobacillus GG” frá árinu 1987, þegar fyrsta greinin um þennan tiltekna geril var birt. Í LGG+ vörunum eru einnig aðrir heilnæmir mjólkursýrugerlar, Lactobacillus acidophilus og Bifidobacterium bifidum, sem er reyndar einnig að finna í ab-vörum. Í MEDLINE gagnagrunninum er einnig hægt að finna fjölda greina um þessa gerla.

Mikilvægir fyrir meltingarveginn
Í þeim fjölmörgu rannsóknum sem gerðar hafa verið á gerlunum í LGG+ er sýnt fram á margvísleg jákvæð áhrif þeirra, t.d. á meltingarstarfsemi. Meðal annars styrkja gerlarnir þarmaflóru líkamans og hafa verndandi áhrif á slímhúðina (1,2). Sýnt hefur verið fram á að LGG-gerillinn geti komið í veg fyrir niðurgangspestir ýmiss konar (3). LGG+ hefur einnig þótt vera gagnlegt til að byggja upp þarmaflóru hjá sjúklingum sem hafa verið á pensillíni og öðrum fúkkalyfjum og slíkt hefur verið staðfest í rannsóknum (4,5). Ennfremur hafa rannsóknir sýnt fram á mikilvægi LGG-gerilsins til að koma í veg fyrir niðurgang á ferðalögum á framandi slóðum (sem er á ensku kallað “travelers diarrhea”) (6). Jafnframt er talið  að LGG-gerillinn geti komið í veg fyrir harðlífi.

Jákvæð áhrif á mjólkursykursóþol
LGG-gerillinn, sem og reyndar aðrir mjólkursýrugerlar, eru taldir hafa góð áhrif á mjólkursykursóþol (7). Það gerist þannig að gerlarnir sjálfir brjóta niður mjólkursykurinn í vörunni við sýringu, sem er ferlið þegar mjólkurvaran er sýrð og verður t.d. að jógúrt eða skyri. Einnig geta þeir gerlar sem lifa af ferðalagið um meltingarveginn, t.d. LGG-gerillinn, brotið niður mjólkursykur í þarmaholinu eftir að vörunnar er neytt.

LGG-gerillinn styrkir ónæmiskerfið og hefur jákvæð áhrif á ofnæmi
Margar rannsóknir á LGG-gerlinum benda til að hann hafi jákvæð áhrif á ónæmiskerfið, t.a.m. hafa sést jákvæð áhrif á exem hjá börnum (8,9,10). LGG-gerillinn virðist einnig geta haft áhrif á fæðuofnæmi (11). Einnig hafa rannsóknir sýnt fram á minni kveftíðni hjá börnum sem fá LGG, t.a.m. sýndi nýleg rannsókn góð áhrif LGG-gerilsins á tíðni kvefs og annarra öndunarfærasjúkdóma á leikskólabörn. Þau sem fengu LGG fengu sjaldnar þessa kvilla en hin sem ekki fengu LGG (12).

Aðrir sjúkdómar
Ýmislegt fleira má tína til sem ákveðnar vísbendingar um en telst kannski ekki fullsannað, m.a. jákvæð áhrif LGG-gerilsins á Crohn's sjúkdóm, magasár og gigt, og verndandi áhrif gegn krabbameini í ristli, tannskemmdum, þvagfærasýkingum og jafnvel kynsjúkdómum.

Hér má fá frekari upplýsingar um LGG+

Greinin er skrifuð af Birni S. Gunnarssyni, matvæla- og næringarfræðingi.


Heimildir

1. Petschow BW, Figueroa R, Harris CL, Beck LB, Ziegler E, Goldin B.
Effects of feeding an infant formula containing Lactobacillus GG on the
colonization of the intestine: a dose-response study in healthy infants. J Clin Gastroenterol 2005;39:786-90.

2. Ouwehand AC, Salminen S, Roberts PJ, Ovaska J, Salminen E. Disease-dependent adhesion of lactic acid bacteria to the human intestinal mucosa. Clin Diagn Lab Immunol 2003;10:643-6.

3. Sazawal S, Hiremath G, Dhingra U, Malik P, Deb S, Black RE. Efficacy of probiotics in prevention of acute diarrhoea: a meta-analysis of masked, randomised, placebo-controlled trials. Lancet Infect Dis 2006;6:374-82.

4. Johnston BC, Supina AL, Vohra S. Probiotics for pediatric antibiotic-associated diarrhea: a meta-analysis of randomized placebo-controlled trials. CMAJ 2006;175:377-83.

5. Szajewska H, Ruszczynski M, Radzikowski A. Probiotics in the prevention of antibiotic-associated diarrhea in children: a meta-analysis of randomized controlled trials. J Pediatr. 2006;149:367-372.

6. Oksanen PJ, Salminen S, Saxelin M, Hamalainen P, Ihantola-Vormisto A, Muurasniemi-Isoviita L, Nikkari S, Oksanen T, Porsti I, Salminen E, et al. Prevention of travellers' diarrhoea by Lactobacillus GG. Ann Med 1990;22:53-6.

7. de Vrese  M, Stegelmann A, Richter B, Fenselau S, Laue C, Schrezenmeir J. Probiotics--compensation for lactase insufficiency. Am J Clin Nutr 2001;73:421S-429S.

8. Kalliomaki M, Salminen S, Arvilommi H, Kero P, Koskinen P, Isolauri E. Probiotics in primary prevention of atopic disease: a randomized placebo-controlled trial. Lancet 2001;357:1076-9.

9. Kalliomaki M, Salminen S, Poussa T, Arvilommi H, Isolauri E. Probiotics and prevention of atopic disease: 4-year follow-up of a randomized placebo-controlled trial. Lancet 2003;361:1869-71.

10. Isolauri E, Arvola T, Sutas Y, Moilanen E, Salminen S. Probiotics in the management of atopic eczema. Clin Exp Allergy 2000;30:1604-10.

11. Majamaa H, Isolauri E. Probiotics: a novel approach in the management of food allergy. J Allergy Clin Immunol 1997;99:179-85.

12. Hatakka K, Savilahti E, Ponka A, Meurman JH, Poussa T, Nase L, Saxelin M, Korpela R. Effect of long term consumption of probiotic milk on infections in children attending day care centres: double blind, randomised trial. BMJ 2001;322:1327.

Til baka

Heilsugreinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...

Meira
Fleiri greinar
Skólahreysti
Mjólkursamsalan áfram aða...
Magnús Ólafsson forstjóri Mjólkursamsölunnar og Andrés Guðmundsson stofnandi Icefitness undirrituðu nýlega styrktarsamning vegna Skólahreysti 2009...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar