
Hleðsla er prótein- og íþróttadrykkur sem inniheldur prótein og kolvetni til hleðslu og hentar m.a. vel fljótlega eftir æfingar eða keppni, eða á milli mála.
Próteinin í Hleðslu eru eingöngu hágæða mysuprótein (whey prótein) sem unnin eru úr íslenskri mjólk. Mysuprótein eru talin henta sérstaklega vel til vöðvauppbyggingar, auk annarra mikilvægra eiginleika.
Kolvetnin í Hleðslu koma frá agavesafa (agavesírópi), náttúrulegum mjólkursykri, litlu magni af sterkju og í Hleðslu með jarðarberjum að einhverju leyti kolvetnum úr jarðarberjunum sjálfum.
Hleðsla:
- Prótein- og íþróttadrykkur sem inniheldur prótein (whey prótein) og kolvetni til hleðslu og hentar t.d vel eftir æfingar
- Inniheldur 22 g hágæða prótein - eingöngu hágæða mysuprótein úr íslenskri mjólk
- Enginn hvítur sykur - engin sætuefni - inniheldur agavesafa

Innihaldslýsingar:
Jarðarber: Mysupróteinþykkni (whey prótein), agavesafi (9%), jarðarber (4%), tapíókasterkja, sítrónusafi, grænmetissafi, bragðefni, jógúrtgerlar.
Vanilla: Mysupróteinþykkni, agavesafi (9%), tapíókasterkja, vanilla, bragðefni, sítrónusafi, jógúrtgerlar.
Kolvetnamagnið er alls 10,8%. Þar sem drykkurinn er sýrður með mjólkursýrugerlum (jógúrtgerlum) er nauðsynlegt að sæta hann aðeins til að dekka súrbragðið af grunninum. Þetta er gert með hóflegu magni af agavesafa í stað venjulegs hvíts sykurs og/eða gervisætuefna. Talið er líklegt að agavesafi valdi lægri blóðsykurtoppi en venjulegur hvítur sykur.
Hleðsla inniheldur aðeins 0,7% fitu, sem kemur úr mjólkurgrunninum. Mjólkurgrunnurinn samanstendur eingöngu af sérstöku mysupróteinþykkni sem gert er með sérstakri síunartækni úr mysu sem fellur til í ostagerð hjá MS Akureyri.
Ástæða þess að drykkurinn er sýrður er m.a. lengra geymsluþol en í ferskum ósýrðum drykk og einnig þykir drykkurinn frísklegri sýrður en ósýrður.
Innihaldsefnin í Hleðslu eru eftirfarandi:
- Mysupróteinþykkni(whey prótein): Gert úr mysu sem fellur til í ostagerð (hjá MS Akureyri) með sérstakri síunartækni. Þykknið inniheldur 10,6% mysuprótein, um 3% mjólkursykur og 0,7% fitu.
- Agavesafi: Unnið úr mexíkóskum kaktus, gefur sætu og inniheldur einföld kolvetni. Veldur mögulega minni blóðsykurtoppi en venjulegur hvítur sykur. Innihald í Hleðslu er um 9,5%. Í agavesafa er kolvetnainnihald ca. 75-80%. Agave gefur því ca. 7,5% kolvetni í heildarkolvetnaprósentuna, meðan ca. 3% koma úr mjólkursykri og restin úr sterkju.
- Jarðarber (í jarðarberjategund): Alls 4% af innihaldinu eru jarðarber.
- Tapíókasterkja: Magn í endanlegri vöru mjög lítið 0,2% í vanillu og 0,4% í jarðarberja. Gegnir hlutverki við að halda stöðugleika í ávöxtum og lokavöru. Tapíóka er sterkjan í ávextinum kassava, sem víða er ræktaður og notaður, m.a. í S-Ameríku og Asíu.
- Sítrónusafi: Mjög lítið magn. Skerpir á bragði.
- Grænmetissafi: Notaður í mjög litlu magni til að gefa lit. Er n.k. náttúrulegt litarefni.
- Bragðefni: Gefur æskilegt bragð, í þessum tilfellum jarðarberja- og vanillubragð. Notað einnig í mjög litlu magni.
- Jógúrtgerlar: Notaðir til að sýra grunninn (mysupróteinþykknið).
Í innihaldslýsingu er innihaldsefnum raðað eftir minnkandi magni, þ.e. mest er af mysupróteinþykkninu og minnst af jógúrtgerlum.

Engin viðbætt næringarefni eru í Hleðslu, en eins og mjólk er Hleðsla hlaðin vítamínum og steinefnum sem koma að mestu leyti úr mysupróteingrunninum.
Prótein í fæðunni eru samansett úr 20 amínósýrum, þar af eru 8 lífsnauðsynlegar. Þessar amínósýrur gegna mörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum. Þær eru grunneiningar líkamspróteinanna, sem eru m.a. byggingarefni vöðva og beina, auk þess að gegna margs konar öðrum hlutverkum í líkamanum. Sem dæmi eru sum prótein hormón og önnur ensím. Prótein eiga líka þátt í framleiðslu mótefna. Líkaminn notar umframprótein úr fæðu sem orkugjafa en þar sem prótein innihalda köfnunarefni og ofgnótt af ammoníaki sem verður að skilja út, getur mikið próteinmagn í fæðu valdið álagi á nýrun. Skv. almennum ráðleggingum um mataræði ætti 0,8 g af próteinum á hvert kg líkamsþyngdar að henta flestum, þeir sem æfa mjög mikið geta miðað við 1,0 g prótein/kg líkamsþyngdar.
Mysuprótein: Eru bæði auðmeltanleg og með hentuga amínósýrusamsetningu. Innihalda mikið af greinóttum amínósýrum sem geta nýst til orkugjafar í vöðvum. Innihalda einnig mikið af amínósýrunum arginíni og lýsíni, sem mögulega örva losun vaxtarhormóns (GH)og örva þannig aukningu í vöðvamassa og minnkun fitumassa. Inniheldur einnig glútamín sem hjálpar við að fylla glýkógenbirgðir eftir æfingu og kemur í veg fyrir veikingu ónæmiskerfisins vegna ofþjálfunar.
Kolvetni eru mikilvægasti orkugjafi líkamans, og er geymdur í líkamanum á formi glýkógens, sem er n.k. forðabúr fyrir kolvetni. Glýkógenbirgðirnar eru fyrst og fremst í lifrinni en einnig í öllum vöðvafrumum, þar sem þær eru mjög aðgengilegar fyrir snörp átök. Með því að næra sig reglulega með fæðu sem inniheldur kolvetni, er hægt að halda við glýkógenbirgðum án þess að þurfa að ganga á líkamsvefina (próteinforða líkamans). Til marks um mikilvægi kolvetna sem orkugjafa, þá má benda á að heilinn nýtir aðeins kolvetni sem orkugjafa, en ekki prótein eða fitu. Í neyðarástandi (svelti) getur stór hluti hans aðlagað sig aðstæðum og nýtt afurðir fitu til að fá orku, en ákveðinn hluti heilans krefst þess alltaf að fá einvörðungu kolvetni sem orkugjafa og í sveltisástandi framleiðir líkaminn þessi kolvetni úr líkamspróteinum og brýtur með því niður vöðvavef.
Samanburður við skyrdrykk:
Í fljótu bragði liggur munurinn á milli skyrdrykkjar og próteindrykkjar í próteinstyrknum, í skyrdrykkjum er magn próteina um 5-6% en tæp 9% í Hleðslu. Einnig eru próteinin í Hleðslu eingöngu mysuprótein, en hlutfall próteina í skyrdrykk eru ca. 70-80% kasein (ostaprótein) og 20-30% mysuprótein.
Fyrir hverja er Hleðsla:
Hleðsla hentar öllum sem eru í íþróttum eða stunda aðra hreyfingu. Einnig er möguleiki að drykkurinn henti eldri borgurum, þar sem mysuprótein eru talin geta mögulega aukið vöðvastyrk, t.d. hjá þeim sem þjást af vöðvarýrnun (e. sarcopenia), en vöðvarýrnun er algeng hjá eldri borgurum.
Almennt er mælt með að próteinneysla sé í kringum 1 g/kg líkamsþyngdar, og ekki mikið meira en 1,5 g/kg líkamsþyngdar, hjá þeim sem eru mjög virkir í íþróttum og hreyfingu. Þar sem prótein fást víða í fæðu, t.d. í kjöti og fiski, er ekki ástæða til að mæla með meira en sem nemur 1 drykk fyrir fullorðna á dag (tveir drykkir max), og 1 drykk max fyrir börn og unglinga frá ca. 12 ára aldri. Hleðsla er ekki hættuleg yngri börnum en regluleg neysla er óþörf, þar sem þau fá almennt nægt prótein úr venjulegri fæðu og mikil langvarandi próteinneysla getur valdið álagi á nýrun og nýru barna eru minni og óþroskaðri en hjá fullorðnum.
Hér fyrir neðan má sjá ítarlega innihaldslýsingu á vörunni
|
Næringargildi í 100 g:
|
Jarðarber
|
Vanilla
|
|
Orka
|
350 kJ/83 kcal
|
360 kJ/85 kcal
|
|
Prótein
|
8,8 g
|
8,9 g
|
|
Kolvetni
|
10,8 g
|
10,8 g
|
|
Fita
|
0,7 g
|
0,7 g
|
|
|
|
|
|
B2-vítamín
|
0,14 mg
|
0,14 mg
|
|
Kalk
|
41 mg
|
43 mg
|
|
Fosfór
|
46 mg
|
48 mg
|
|
|
|
|
|
Amínósýrur:
|
|
|
|
Lýsín
|
784 mg
|
823 mg
|
|
Metíónín
|
184 mg
|
193 mg
|
|
Cystein
|
208 mg
|
218 mg
|
|
Asparagínsýra
|
904 mg
|
949 mg
|
|
Threónín
|
656 mg
|
689 mg
|
|
Serín
|
480 mg
|
504 mg
|
|
Glútamínsýra
|
1520 mg
|
1596 mg
|
|
Prólín
|
560 mg
|
588 mg
|
|
Glýsín
|
168 mg
|
176 mg
|
|
Alanín
|
432 mg
|
454 mg
|
|
Valín
|
520 mg
|
546 mg
|
|
Isoleusín
|
552 mg
|
580 mg
|
|
Leusín
|
856 mg
|
899 mg
|
|
Tyrósín
|
232 mg
|
244 mg
|
|
Phenýlalanín
|
288 mg
|
302 mg
|
|
Histidín
|
160 mg
|
168 mg
|
|
Arginín
|
208 mg
|
218 mg
|
|
Tryptófan
|
144 mg
|
151 mg
|
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri nýjungar




