Stafagangan er hentug fyrir alla aldurshópa og er fín leið til heilsubótar. Í stafagöngu eru notaðir sérhannaðir göngustafir og þjálfast allir stærstu vöðvar líkamans en þó sérstaklega vöðvar í efri hluta líkamans. Sveiflan á höndunum við stafagöngu geirir það að verkum að vöðvarnir í kringum axlir og efri hluta baks styrkjast verulega og jafnfram minnkar álagið á hné, ökkla og mjaðmir.
Stafaganga á uppruna sinn að rekja til Finnlands þar sem finnskir skíðagöngumenn notuðu skíðastafina á sumrin til að halda sér í formi.
Stafagangan er góð æfing fyrir hjarta og lungu og talið er að með stafagöngu náist allt að 20% meiri brennsla en í venjulegir gönguþjálfun. Rannsóknir hafa jafnframt leitt í ljós að stafaganga styrki likamann 40% meira en venjuleg ganga.
Hægt er að æfa stafagöngu hvar sem er og hvaða tíma sólarhringsins sem er. Eina sem þarf til stafagöngu eru góðir skór og stafir í réttri hæð.
Mælt er með því að stunda stafagöngu allt frá hálf tíma og upp í tvo tíma í senn. Það er æskilegt að halda jöfnun hraða og hjartlátturinn ætti að vera milli 120 til 150 slög á mínutu.
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri greinar
Meira
Fleiri nýjungar






