Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Forsíða
      Hafa samband    Starfsmenn    Veftré    About us
Heilsa og hreyfing

Allir þurfa að hreyfa sig reglulega

Heilsa er líkamleg, andleg og félagsleg og því verður að huga að öllum þessum þáttum þegar heilsurækt er annars vegar. Það er ekki sjálfkrafa samasemmerki á milli þess að vera grannur og heilbrigður.

Með fjölbreyttri hreyfingu er mögulegt er að efla og viðhalda líkamsgetu, þar á meðal afkastagetu hjarta- og æðakerfis og lungna, vöðvastyrk, beinþéttni, liðleika, snerpu og samhæfingu ásamt því að stuðla að skilvirkari efnaskiptum. Hreyfing getur einnig hjálpað okkur að stuðla að æskilegri líkamssamsetningu, þ.e. auka hlutfall vöðva á kostnað fitu.

Regluleg hreyfing getur þannig minnkað líkurnar á mörgum lífsstílstengdum sjúkdómum, svo sem hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki af tegund 2, ofþyngd, beinþynningu, sumum tegundum krabbameina, þunglyndi, streitu og kvíða.

Af þessu má vera ljóst að það er mikilvægt fyrir alla að leitast við hreyfa sig reglulega, óháð aldri, kyni eða holdafari.

En hvað þarf að hreyfa sig mikið til að það hafi góð áhrif á heilsuna? Öll hreyfing er betri en engin hreyfing en almennar ráðleggingar miða við að fullorðnir hreyfi sig rösklega í minnst 30 mínútur samtals daglega og börn hreyfi sig í minnst 60 mínútur daglega.  Hreyfing til heilsubótar þarf því ekki að vera tímafrek en aukinni hreyfingu fylgir aukinn ávinningur. Mestur ávinningur er í húfi fyrir kyrrsetufólk sem fer að hreyfa sig meira.

Til að auka hreyfingu er gott að staldra við og skoða hreyfimynstrið í daglegu lífi:
 Hversu mikið hreyfi ég mig í vinnunni, heima við og frístundum?
 Hvernig ferðast ég á milli staða?
 Vel ég stigann eða lyftuna?
 Ýtir klæðnaður minn undir hreyfingu?
 Hvað fer langur tími daglega í sjónvarpsáhorf eða óvinnutengda setu við tölvuna? Gæti ég með betra skipulagi gengið, hjólað eða nýtt almenningssamgöngur einhverja eða alla daga?
 Hvernig er hreyfimynstur fjölskyldunnar?

Heilsugreinar
Hið rétta um transfitusýr...
Í ljósi umræðu undanfarið er sjálfsagt að taka fram að engar vörur Mjólkursamsölunnar innihalda hertar jurtaolíur og transfitusýrur sem hafa...

Meira
Fleiri greinar
Skólahreysti
Mjólkursamsalan áfram aða...
Magnús Ólafsson forstjóri Mjólkursamsölunnar og Andrés Guðmundsson stofnandi Icefitness undirrituðu nýlega styrktarsamning vegna Skólahreysti 2009...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Nýjung - Heimilisostur ri...
Sala er hafin á Heimilis rifnum osti, 100% íslenskur ostur í stærri pokum en fáanlegir hafa verið hingað til.  Í pokanum eru 370 gr af...

Meira
Fleiri nýjungar