Litir: E B H S

« Hætta í ham fyrir sjónskerta

Leturstærð: Stór  Stærri  Stærst 

Kólesterol og benecol

Hvað er kólesteról?
Kólesteról er ein tegund blóðfitu og gegnir ýmsum mikilvægum hlutverkum í líkamanum. En ef kólesterólmagn í blóði eykst umfram þörf getur það valdið æðakölkun og kransæðasjúkdómum.

Hvenær er kólesteról of hátt?
Samkvæmt upplýsingum frá Hjartavernd er æskilegt að heildarkólesteról í blóði sé undir 5 mmól/l. Allt yfir 6 mmól/l telst hátt kólesteról. Hér á landi hafa rétt tæplega 40% karla á aldrinum 40-50 ára og kvenna á aldrinum 50-60 ára kólesterólgildi yfir 6 mmól/l, en tíðni hás kólesteróls vex með hækkandi aldri.

Hvað er Benecol?
Benecol er náttúrulegur mjólkurdrykkur sem ætlaður er þeim sem vilja lækka kólesteról í blóði. Benecol kom fyrst á markað í Finnlandi sem vopn í baráttunni gegn of háu kólesteróli hjá þjóðinni og sló svo rækilega í gegn að nauðsynlegt reyndist að skammta það til neytenda fyrst um sinn. Nú hefur Mjólkursamsalan hafið framleiðslu á þessum heilnæma drykk fyrir íslenskan markað.

Vísindalega staðfest virkni Benecols
Fjölmargar vísindarannsóknir hafa verið gerðar á undaförnum áratugum á áhrifum plöntustanólesters, hins virka efnis í Benecol, á magn kólesteróls í blóði. Niðurstöður eru einróma á þá leið að neysla þess leiði til verulegrar lækkunar kólesteróls. Sýnt hefur verið fram á að plöntustanólester hindrar upptöku kólesteróls úr fæðu. Leiðir þetta til lækkunar heildarkólesteróls í blóði og hins svokallaða „vonda kólesteróls“ (LDL), en hefur engin áhrif á „góða kólesterólið“ (HDL).

Hversu mikilla áhrifa má vænta af neyslu Benecols?
Til að ná hámarkslækkun nægir að drekka eina 65 ml flösku á dag og má þá reikna með allt að 15% meðaltalslækkun kólesteróls þó engar aðrar ráðstafanir séu gerðar. Mælanleg áhrif koma fram á nokkrum vikum eftir að neysla hefst, en kólesteról hækkar aftur sé neyslu hætt.

Allflestir geta neytt Benecols
Allflestir geta neytt Benecols og það hentar vel þeim sem vilja halda kólesteróli innan eðlilegra marka. Benecol er ljúffengt og hægt er að neyta þess hvenær sem er, ýmist sem hluta af máltíð eða milli mála. Ýmsar rannsóknir benda til að Benecol henti vel með kólesteróllækkandi lyfjum. Þó er ráðlegt að þeir sem eru á slíkum lyfjum og hyggjast neyta Benecols geri það í samráði við sinn lækni.

Dagleg neysla Benecols tryggir full áhrif
Til að tryggja full áhrif af Benecol er mikilvægt að neyta þess daglega. Hreyfing og heilsusamlegt mataræði almennt hefur einnig jákvæð áhrif á kólesteról. Æskilegt er að neyta harðrar fitu og kólesteróls í hófi og velja frekar mjúka fitu en harða.
Varan er eingöngu ætluð þeim sem vilja lækka kólesteról í blóði. Hún skal vera hluti af fjölbreyttu mataræði þar sem þess er gætt að borða ávexti og grænmeti til að halda uppi karótínmagni. Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni en sem nemur 3 g/dag af plöntustanólum (sem nemur u.þ.b. 11⁄2 flösku á dag). Sjúklingar á kólesteróllækkandi lyfjum skulu neyta vörunnar í samráði við lækna. Varan getur verið óheppileg fyrir konur sem eru barnshafandi eða með barn á brjósti og börn undir 5 ára aldri.

Hverjir hafa of hátt kólesteról?
Það er útbreiddur misskilningur að hátt kólesteról sé aðeins vandamál þeirra sem eldri eru eða of þungir. Staðreyndin er sú að þetta vandamál getur herjað á fólk á öllum aldri og í öllum þyngdarflokkum og yfirleitt verður fólk engra einkenna vart. Mataræði, ásamt erfðum, hefur einna mest áhrif á magn kólesteróls í blóði.

Heilsugreinar
Járnbúskapur ungbarna hef...
Samkvæmt nýrri rannsókn Rannsóknarstofu í næringarfræði um næringu ungbarna kemur fram að miklar breytingar hafa orðið til hins betra á járnbúskap...

Meira
Fleiri greinar
Skólahreysti
Mjólkursamsalan áfram aða...
Magnús Ólafsson forstjóri Mjólkursamsölunnar og Andrés Guðmundsson stofnandi Icefitness undirrituðu nýlega styrktarsamning vegna Skólahreysti 2009...

Meira
Fleiri greinar
Vörunýjungar
Ný bragðtegund í ostaköku...
Ostakaka með karamellu – ný bragðtegund í Eftirlætislínuna Á dögunum kom á markað Ostakaka með karamellu frá Mjólkursamsölunni. Ostakökurnar...

Meira
Fleiri nýjungar